Veður

Dregið úr vindi og úr­komu en á­fram hætta á skriðu­föllum

Eiður Þór Árnason skrifar
Sérstaklega úrkomusamt hefur verið á Siglufirði.
Sérstaklega úrkomusamt hefur verið á Siglufirði. Vísir/Egill

Lægðin sem olli leiðindaveðri víða um land í gær er nú skammt vestur af Færeyjum og grynnist smám saman, og því hefur talsvert dregið úr vindi og úrkomu á landinu.

Þetta segir veðurfræðingur á vef Veðurstofu Íslands. Það verði þó áfram norðan- og norðvestanátt í dag, víða 5 til 13 metrar á sekúndu og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina upp í 15 stig syðst á landinu.

Keimlíkt veður verði á morgun en þó líklega heldur bjartara sunnanlands. Síðdegis fari að draga úr vætu fyrir norðan. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að áfram sé hætta á skriðuföllum og vatnavöxtum á norðanverðu landinu en óvissustig almannavarna er í gildi á Norðurlandi eystra.

Klukkan 18 í gær hafði verið tilkynnt um grjóthrun og aurskriður utan við Suðureyri í Súgandafirði, í Tungudal innan við Ísafjörð og í Breiðadal í Önundarfirði. Einnig var tilkynnt um tvær skriður á Siglufirði, nokkrar skriður og grjóthrun á Siglufjarðarvegi og tvær skriður í Strandarhrepp, á vegi númer 643. Enginn af þessum skriðuatburðum hefur valdið tjóni á innviðum eða húsum, að sögn Veðurstofunnar.

Lokað vegna skriðufalla og grjóthruns

Siglufjarðarvegur er lokaður vegna skriðufalla og grjóthruns, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hjáleiðir eru um Lágheiði (82) eða Öxnadalsheiði (1) og Ólafsfjarðarveg (82). Einnig er Strandavegur lokaður.

Líkur eru sagðar á fleiri skriðuföllum á Norðurlandi, Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum.

Að sögn Vegagerðarinnar er hætta á skriðuföllum á Súðavíkurhlíð og á Snæfjallastrandarveg á Vestfjörðum vegna mikillar úrkomu. Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega.

Klukkan 18 í gær hafði verið tilkynnt um grjóthrun og aurskriður utan við Suðureyri í Súgandafirði, í Tungudal innan við Ísafjörð og í Breiðadal í Önundarfirði. Einnig var tilkynnt um tvær skriður á Siglufirði, nokkrar skriður og grjóthrun á Siglufjarðarvegi og tvær skriður í Strandarhrepp, á vegi númer 643. Enginn af þessum skriðuatburðum hefur valdið tjóni á innviðum eða húsum, að sögn Veðurstofunnar. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og væta með köflum, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti 5 til 14 stig, mildast syðst.

Á mánudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta norðaustanlands fram eftir morgni. Stöku skúrir sunnantil eftir hádegi. Hiti 7 til 14 stig.

Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 suðaustan- og austantil og lítilsháttar væta, en hægari annars staðar og víða bjartviðri. Hiti 8 til 15 stig yfir daginn, mildast suðvestanlands.

Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil rigning syðst. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt og bjart að mestu, en þykknar upp norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á föstudag: Norðlæg átt og rigning með köflum, en lengst af þurrt suðvestanlands. Heldur kólnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×