Fótbolti

„Hjartað langaði að halda á­fram að ei­lífu“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð í leiknum sögulega gegn Argentínu á HM í Rússlandi þar sem hann skoraði fyrsta mark Íslands á HM frá upphafi.
Alfreð í leiknum sögulega gegn Argentínu á HM í Rússlandi þar sem hann skoraði fyrsta mark Íslands á HM frá upphafi. vísir/getty

Það urðu tímamót hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í upphafi vikunnar er markahrókurinn Alfreð Finnbogason tilkynnti að hann hefði lagt landsliðsskóna á hilluna.

Alfreð spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2010 gegn Færeyjum. Þegar upp var staðið hafði Alfreð náð að spila 73 landsleiki og hann skoraði 18 mörk í þeim leikjum. Hann segist hafa tekið þessa ákvörðun fyrr í sumar.

„Ég byrjaði að hugsa þetta vel og innilega eftir landsleikina í mars. Í fyrsta skipti í langan tíma kom ég ekkert við sögu og mér fannst vera breytingar varðandi mitt mikilvægi inn á vellinum. Ég hef verið með þetta í maganum í nokkra mánuði og fannst þetta vera rétti tímapunkturinn núna. Sú tilfinning hefur ekkert farið frá mér síðan,“ segir Alfreð við íþróttadeild en það breytir því ekki að ákvörðunin var engu að síður erfið.

Erfitt að sætta sig við að vera á eldri árum í boltanum

„Ég var að fara með þetta fram og til baka. Þetta var erfitt og það er erfitt að sætta sig við að maður er kominn á eldri árin í fótboltanum. Hjartaðlangaði að halda áfram að eilífu. Því meira sem ég hef hugsað um þetta finnst mér tímapunkturinn vera réttur. Það eru kynslóðaskipti og það eru góðir menn í minni stöðu núna sem geta tekið við keflinu.“

Alfreð spjallaði við Åge Hareide landsliðsþjálfara í byrjun ágúst en tók endanlega ákvörðun í síðustu viku.

Er mjög stoltur

Hann hefur eðli málsins samkvæmt safnað mörgun góðum minningum í bankann og horfir sáttur til baka á landsliðsferilinn.

„Það eru mörg augnablik en ef ég á að taka út eitt augnablik er það auðvitað að skora á HM. Í stóru myndinni er það auðvitað að fara á stórmót sem Íslendingur. Það er eitthvað sem var ekkert mjög raunhæfur möguleiki fyrir nokkrum árum,“ segir Alfreð stoltur.

„Að vera einn 23 leikmanna sem var fyrir Íslands hönd á EM og HM er eitthvað sem gerir mig ótrúlega stoltan. Svo er það auðvitað þessi vinátta leikmanna sem er sérstök og eitthvað sem mun endast út ævina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×