Innlent

Niður­stöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfus­á vænst á næstu dögum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ný Ölfusárbrú verður byggð norðaustan við Selfoss. Horft að brúarstæðinu úr vestri í átt að Laugardælum.
Ný Ölfusárbrú verður byggð norðaustan við Selfoss. Horft að brúarstæðinu úr vestri í átt að Laugardælum. Vegagerðin

Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár.

Í fréttum Stöðvar 2 var rifjað upp kosningaloforð Sigurðar Inga fyrir síðustu þingkosningar, þá samgönguráðherra; að framkvæmdum við nýja Ölfusárbrú yrði lokið annað hvort í lok árs 2023 eða á árinu 2024.

Þetta loforð stóðst augljóslega ekki. Ekkert bólar á nýju brúnni meðan umferðarhnútarnir við gömlu brúna halda áfram að vaxa.

Fyrr í vor sagðist Vegagerðin stefna að því að ljúka samningaviðræðum við verktaka um smíði nýrrar Ölfusárbrúar fyrir lok maímánaðar og fyrr í sumar fékk Stöð 2 þær upplýsingar að viðræður Vegagerðarinnar og ÞG Verks hefðu leitt til sameiginlegrar niðurstöðu. Beðið væri eftir heimild ráðherra til að skrifa undir og búist væri við undirritun á næstu dögum.

Brúargólf verður nítján metra breitt og er gert ráð fyrir 2+1 vegi með aðskildum aksturstefnum ásamt göngu- og hjólaleið.Vegagerðin

Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun var fjármálaráðherra spurður um stöðu málsins:

„Það hefur bara verið til gagngerrar skoðunar og samtals núna í sumar og ég vænti nú bara niðurstöðu næstu daga,“svaraði Sigurður Ingi spurningu Berghildar Erlu Bernharðsdóttur fréttamanns.

Samningsdrög sem lágu fyrir í byrjun sumars gera ráð fyrir verklokum 30. september árið 2027, eftir rúm þrjú ár, en forsendan var sú að framkvæmdir gætu hafist núna síðsumars. Seinkun undirritunar þýðir seinkun framkvæmda en engu að síður halda menn í vonina um að þær gætu hafist með haustinu. Undirbúningsvinna hæfist strax, sem og jarðvegsframkvæmdir, en mikilvægast er talið að hefja hönnunarvinnu sem fyrst, bæði hönnun brúar og vega.

Hér er brúarstæðið. Nýja brúin verður um Efri-Laugardælaeyju sem sést hér fyrir miðri mynd og nemur land við golfvöllinn á Selfossi. Handan ár er malarfylling komin í fyrirhugaða vegtengingu.Arnar Halldórsson

En hvað er að tefja framgang málsins?

„Það er bara verið að skoða svona ákveðna þætti sem tengjast því að við erum svolítið að feta aftur þessa nýju slóð samvinnuverkefna, PPP, hugsa til Hvalfjarðarganganna, og stjórnkerfið þarf svolítinn tíma til þess að melta það og meta. Og við erum bara með það til skoðunar. Þannig að ég vænti niðurstöðu bara næstu daga,“ segir fjármálaráðherra.

Hér er frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×