Viðskipti innlent

Hundrað og fimm­tíu missa vinnuna hjá Controlant

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Gísli Herjólfsson forstjóri Controlant segir um erfiða en nauðsynlega ákvörðun að ræða.
Gísli Herjólfsson forstjóri Controlant segir um erfiða en nauðsynlega ákvörðun að ræða. Vísir/Vilhelm

Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant hefur sagt upp 150 starfsmönnum, um þriðjungi starfsmanna, í hagræðingaraðgerðum. Nú starfa 290 manns hjá fyrirtækinu sem óx á ógnarhraða í heimsfaraldri með lykilhlutverk í dreifingu bóluefna. 

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. 

„Krefjandi aðstæður á alþjóðamörkuðum og tafir í nýfjárfestingum hafa markað rekstrarumhverfið undanfarin misseri. Controlant þjónustar eftirlitsskyldan iðnað og hefur langt sölu- og innleiðingarferli einnig haft áhrif á verkefnastöðu,“ segir í tilkynningunni.

„Í ljósi þessa hefur tekjuspá félagsins verið uppfærð og reynist nauðsynlegt að grípa til aðgerða, þar með talið fækkun starfsfólks til þess að draga úr rekstrarkostnaði og aðlaga starfsemi félagsins að þeim verkefnum sem framundan eru.“

Fréttastofa hefur óskað eftir viðtali vegna málsins en í svari Láru Hilmarsdóttur upplýsingafulltrúa Controlant er þeirri beiðni hafnað og vísað í tilkynningu.

Um er að ræða aðra hópuppsögnina hjá fyrirtækinu á árstímabili. 79 starfsmönnum var sagt upp störfum í nóvember á síðasta ári.

Erfið en nauðsynleg ákvörðun

Starfsfólki fækki þar með um 150 þvert á deildir og starfsstöðvar í fimm löndum, og í kjölfarið starfi 290 manns hjá félaginu á fimm starfsstöðvum, „langflestir á Íslandi“.

Haft er eftir Gísla Herjólfssyni forstjóra og einum stofnenda Controlant að um erfiða en nauðsynlega ákvörðun sé að ræða.

„Til þess að aðlaga umfang félagsins að núverandi verkefnum og stuðla að sjálfbærum rekstri. Framúrskarandi fólk hefur lagt Controlant lið við uppbyggingu þess, metnaðarfulla nýsköpun, og markaðssókn. Það er því dapurt að kveðja frábæra samstarfsfélaga og ég þakka þeim kærlega fyrir sitt framlag til vegferðar félagsins,“ segir Gísli.

Gríðarlegur vöxtur 

„Við munum áfram sinna núverandi og nýjum viðskiptavinum af kostgæfni, og bjóða framúrskarandi þjónustu og vöruframboð ásamt því að auka skilvirkni og sjálfbærni í rekstri. Sýn okkar er skýr og í samstarfi við stærstu lyfjafyrirtæki heims höldum við áfram að umbylta aðfangakeðju lyfja, útrýma sóun og tryggja öryggi sjúklinga í hvívetna.“

Controlant er íslenskt hátæknifyrirtæki sem fór á flug í kórónuveirufaraldrinum. Fyrirtækið gegndi lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir bandaríska lyfjarisan Pfizer og vöxtur þess hefur verið ævintýralegur síðustu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×