Innlent

Sex bílum stolið af Heklu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá höfuðstöðvum Heklu við Laugaveg 174.
Frá höfuðstöðvum Heklu við Laugaveg 174. Vísir/Vilhelm

Brotist var inn í höfuðstöðvar Heklu við Laugaveg 174 seint í gærkvöldi og sex bifreiðum stolið. Bifreiðarnar eru bæði í eigu fyrirtækisins og viðskiptavina þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heklu. Þar segir að um sé að ræða tvær VW bifreiðar, þrjár Skoda og eina Audi sem voru hjá fyrirtækinu til viðgerða og viðhalds.

„Eigendum umræddra bifreiða hefur verið tilkynnt um þjófnaðinn sem náðist á öryggismyndavélakerfi fyrirtækisins. Lögreglan, í samstarfi við starfsmenn Heklu, vinnur nú að endurheimt bifreiðanna,“ segir í tilkynningu frá Heklu.

Bílarnir voru í eigu Heklu og viðskiptavina þeirra.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×