Innlent

Sam­þykkja nafnið Buf­fý en hafna tveimur nöfnum

Atli Ísleifsson skrifar
Bandaríska leikkonan Sarah Michelle Gellar fór með hlutverk vampírubanans Buffy í þáttunum Buffy: The Vampire Slayer fyrr á öldinni.
Bandaríska leikkonan Sarah Michelle Gellar fór með hlutverk vampírubanans Buffy í þáttunum Buffy: The Vampire Slayer fyrr á öldinni. EPA

Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Buffý og Amira og hafa þau verið færð á mannanafnaskrá.

Nefndin birti í dag fjóra úrskurði sína þar sem fram kemur að beiðnum um karlmannsnafnið Josef og kvenmannsnafnið Hennie hafi verið hafnað.

Um Josef segir að nafnið standist ekki skilyrði sem sett er um að ekki megi brjóta í bága við íslenskt málkerfi. 

„Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir einnig að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Líta verður á að Josef sé ritháttarafbrigði af hinu rótgróna nafni Jósef sem stríði gegn hefð við ritun þess,“ segir í úrskurðinum.

Varðandi beiðnina um nafnið Hennie segir að í málinu reyni á skilyrði um að nöfn skuli rituð í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Hennie sé ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan ie komi ekki fyrir í ósamsettum orðum. Þá er hið umbeðna nafn ritháttarafbrigði nafnsins Henný, sem þegar er á mannanafnaskrá. Þannig er aðeins hægt að samþykkja það að hefð sé fyrir þessum rithætti nafnsins.

Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að að svo sé ekki þar sem enginn beri nafnið Hennie í þjóðskrá, auk þess að nafnið komi heldur ekki fyrir í manntölum frá 1703 til 1920. Telst því ekki hefð fyrir umbeðnum rithætti nafnsins og því hafnað.


Tengdar fréttir

Nú má heita Arló og Marló en ekki Salvarr

Mannanafnanefnd birti í vikunni tíu úrskurði þar sem teknar voru fyrir nafnabeiðnir. Allar beiðnir voru samþykktar utan beiðni þess sem vill heita Salvarr.

Nú má heita Roj

Mannanafnanefnd samþykkti í síðustu viku sex eiginnöfn, þar af fjögur kvenmannsnöfn og tvö karlmannsnöfn. Hins vegar var einu nafni hafnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×