Menning

Hlýtur Al­þjóð­leg bók­mennta­verð­laun Hall­dórs Lax­ness í ár

Atli Ísleifsson skrifar
Salman Rushdie hefur á ferli sínum sent frá sér fimmtán skáldsögur.
Salman Rushdie hefur á ferli sínum sent frá sér fimmtán skáldsögur. Bókmenntahátíð

Bresk-bandraríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 en Rushdie mun veita verðlaununum viðtöku í Háskólabíói föstudaginn 13. september næstkomandi.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Bókmenntahátíð Reykjavíkur. Þar segir að verðlaunin séu veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar. Á þá leið hljóðaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. 

„Verðlaununum er líka ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi. Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, forsætisráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Háskóli Íslands er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024.

Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 þegar breski rithöfundurinn Ian McEwan veitti þeim viðtöku. Tveimur árum seinna hlaut tyrkneski höfundurinn Elif Shafak verðlaunin og árið 2022 hlotnuðust þau úkraínska höfundinum Andrei Kúrkov.

Í ár hlýtur verðlaunin rithöfundurinn Salman Rushdie. Hann mun veita þeim viðtöku föstudaginn 13. september. Venju samkvæmt mun forsætisráðherra afhenda Rushdie verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi að auki. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson munu svo leiða samræður við Rushdie á sviði eftir afhendinguna.

Í rökstuðningi valnefndar segir meðal annars að skáldsögur Salmans Rushdies séu heillandi, heimspekilegar og upplýsandi sögur fyrir lesendur sem eru tilbúnir að uppgötva nýja heima. Fyrir lesendur um heim allan hafi ímyndin um Rushdie, sem í meira en þrjátíu ár hefur haldið áfram að skrifa skáldsögur sínar þrátt fyrir dauðadóm klerkastjórnarinnar í Íran, í framhaldi af útgáfu verksins Söngvar Satans, og banatilræðið sem honum var sýnt í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, orðið að táknmynd hugrekkis og óbeygjanlegs vilja. Bókin Hnífur, þar sem Rushdie lýsir banatilræðinu og afleiðingum þess, kemur út á íslensku hjá Forlaginu í þýðingu Árna Óskarssonar af þessu tilefni.

Verðlaunaathöfnin og dagskráin með Salman Rushdie verður í Háskólabíó föstudaginn 13. september og hefst hún klukkan 17:30. Öll eru velkomin og það er enginn aðgangseyrir, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miðum í gegnum miðasöluvefinn Tix.is. Bóksala verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa nýju bókina, Hníf, áritaða af höfundi.

Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2024 eru úkraínski rithöfundurinn Andrei Kúrkov, sem hlaut verðlaunin árið 2022, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík.

Um Salman Rushdie

Salman Rushdie hefur sent frá fimmtán skáldsögur. Á meðal þeirra eru Miðnæturbörn, (sem hlaut Booker-verðlaunin og var valin besta Booker-verðlaunabók allra tíma) og Söngvar Satans. Fimm skáldsögur Rushdies hafa verið á stuttlista Booker-verðlaunanna. Rushdie hefur einnig sent frá sér sjálfsævisöguleg verk, ritgerðasöfn og smásögur.

Salman Rushdie hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín sem hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál. Árið 2023 var hann á lista tímaritsins Time yfir hundrað áhrifamestu manneskjur ársins,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×