Innlent

Guide to Iceland viti ekkert um fólkið í ferðinni

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ingólfur Abrahim Shahin er stór eigandi í Guide to Iceland.
Ingólfur Abrahim Shahin er stór eigandi í Guide to Iceland. Guide to Iceland

Ingólfur Shahin, þróunarstjóri og stór hluthafi í Guide to Iceland, segist ekki hafa neinar leiðir til þess að vita hvort að ferðamennirnir sem voru í hópi Ice Pic Journeys þegar að banaslys varð á Breiðamerkurjökli eftir íshrun, hafi bókað í ferðina í gegnum bókunarsíðu Guide to Iceland. 

Þetta segir Ingólfur í samtali við Vísi. Guide to Iceland er ráðandi bókunarsíða í íslenskri ferðaþjónustu. Þar hefur meðal annars verið hægt að bóka íshellaferðir á Breiðamerkurjökli með leiðsögufyrirtækjum eins og Ice Pic Journeys. 

Hann bendir á að Ice Pic Journeys sé í viðskiptum við fjölmargar bókunarsíður og hótel og því alls ekki hægt að segja til um það í gegnum hvaða bókunarsíðu hver ferðamaður bókaði og með öllu óvíst hvort nokkur ferðamaður í þessari tilteknu ferð hafi bókað í gegnum Guide to Iceland.

Ómögulegt fyrir okkur að vita

„Við höldum utan um allar bókanir sem koma frá okkur en við vitum ekki hve stór hluti það er af hverri heildarferð. Það er ómögulegt fyrir okkur að vita,“ segir Ingólfur í samtali við Vísi. 

Hann bendir á að sá eini sem fær heildarlista yfir gesti í hverri ferð séu fyrirtæki sem bjóða upp á ferðir sem Guide to Iceland endurselur. 

Á bókunarsíðu Guide to Iceland er hægt að kaupa alls konar ferðir fyrir nokkra í einu án þess að skrá upplýsingar um hvern og einn gest eða farþega í hverri ferð. Guide to Iceland fær einungis upplýsingar um þann sem greiðir fyrir ferðina. 

Leiðsögumaðurinn sá eini sem sé með heildarlista

Ýmsir aðilar í ferðaþjónustunni hafa bent á að að lokum sé það á ábyrgð hvers og eins fyrirtækis sem gerir út ferðir að halda utan um nöfn og fjölda þeirra sem taka þátt í hverri ferð. Lögreglan átti í vandræðum á sunnudaginn þegar slysið varð að vera viss hvort að einhver væri enn undir ísnum þar sem það vantaði nöfn á lista Ice Pic Journeys. 

Ingólfur minnir á að engin lög séu til staðar sem segi til um það að bókunarsíður í ferðir hér á landi hafi nöfn allra þeirra sem kaupa ferðina. 


Tengdar fréttir

Fengu ekki vitneskju um slys níu dögum fyrir banaslys

Vatnajökulsþjóðgarður fékk enga vitneskju um slys sem að ferðamaður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli lenti í níu dögum fyrir banaslys á svæðinu. Þann 16. ágúst féll ísklumpur úr nokkurra metra hæð og lenti á höfði mannsins með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund í stutta stund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×