Innlent

Mið­bærinn orðinn hættu­legri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Georg Leite rekur Kalda bar á Klapparstíg. Hann hefur búið á Íslandi í tæp þrjátíu ár.
Georg Leite rekur Kalda bar á Klapparstíg. Hann hefur búið á Íslandi í tæp þrjátíu ár.

Bareigandi í Reykjavík segir miðbæ Reykjavíkur vera töluvert hættulegri en þegar hann kom hingað til lands frá Brasilíu fyrir um þrjátíu árum. Hann segist vera áhyggjufullur vegna stöðunnar og að reynsla hans af því að alast upp í Brasilíu sé orsökin á því.

Georg Leite, vertinn á Kalda á Klapparstíg, er til viðtals í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein Pæling með Þórarni Hjartarsyni. Georg ræðir ofbeldi sem átti sér stað á Menningarnótt þar sem fjögur ungmenni voru stungin í tveimur hnífaárásum. Hann segir þetta ekki koma sér á óvart. 

„Nei, alls ekki, þetta er eitthvað sem að ég er búinn að vera tala um. Ég á tvítuga stelpu sem hefur undanfarin 5-6 ár verið á sínum unglingsárum. Undanfarið hef ég einfaldleg sagt henni að það sé bannað að fara niður í bæ þangað til að hún verður eldri.“

Íhugi að taka leigubíl heim úr vinnunni

Georg segir frá því hversu hættulegt lífið hafi verið í heimalandi sínu Brasilíu. Raunveruleikinn á Íslandi hafi verið allt annar þegar hann kom hingað fyrst. Ísland hafi verið fullkomið.

„Ég þurfti ekkert að pæla í þessu þegar ég kom til Íslands fyrir rúmum 30 árum síðan. En þetta er búið að breytast, og því miður get ég ekki sagt við dóttur mína að hún geti verið niður í bæ.“

Frá vettvangi hnífsstunguárásar í Skúlagötu á laugardagskvöld.vísir

Georg er spurður því næst hvað hafi breyst, um það segir hann: 

„Það eru miklu fleiri unglingar niðri í bæ, og miklu meira allskonar niður í bæ. Miklu fleiri slagsmál, miklu fleiri árásir,“ segir Georg. 

Nú íhugi hann að taka leigubíl heim úr vinnu í miðbænum þrátt fyrir að búa í göngufæri sökum þess að hópar hafi gert sig líklega til að vilja slást við hann og bætir við: 

„Ísland er búið að opna fyrir allskonar og það er bara allskonar fólk niður í bæ.“

Aðspurður hvað honum finnst um þá umræðu um að aukin hætta í miðbæ Reykjavíkur sé ekki á rökum reist bendir hann á að að þó svo hægt fara niður í bæ án þess að lenda í vandræðum sé veruleikinn annar fyrir þá sem starfi á þessum vettvangi. 

„Ef að þú ferð niður í bæ einu sinni mánuði eða á þriggja mánaða fresti, þá getur þú kannski haldið að það sé allt í lagi. En fyrir okkur sem að erum að vinna þarna á hverjum einasta degi þá er það bara ekki það sama. Það eru allskonar hlutir að gerast.“

Glæpamenn þekki kerfið og gangi á lagið

Georg telur vandann ekki snúast um bari og áfengi heldur hafi menning skemmtanalífsins á Íslandi breyst til muna. 

„Þetta er stórt vandamál, við þurfum að pæla í þessu betur; eiturlyfjum, gengjum, hvernig lögreglan er að tækla þetta. Ég þarf oft að henda manneskju út, sem verða bara slagsmál, manneskja sem er að lemja í allt og alla, svo fer hann út og lögreglan kemur og tekur hann. En hálftíma síðar er hann kominn til baka.“ 

Brot úr viðtalinu má sjá að neðan.

Í sumum tilfellum komi viðkomandi vopnaður til baka. Þetta valdi því að glæpamenn virði reglur og lög að vettugi sökum þess að þeir komist upp með það. 

„Svona virkar kerfið, og fólk sem er að haga sér svona veit alveg hvernig kerfið virkar. Þau vita ef að þau koma til mín og gera eitthvað þá kemur ekkert fyrir hann, og hann getur lifað svona lífi í tvö til þrjú ár. Og það finnst mér skrýtið.“ 

Tímarnir séu breyttir. 

„Við þurfum að vinna saman með lögreglunni og það hvernig lögin virka, eins og með stunguárásum, slagsmál, hótanir, nauðganir. Þetta þarf að verða stífara.“ 

Reynsla af því að alast upp í Brasilíu valdi Georg örvæntingu

Georg segir að þessi þróun til verri vegar valdi honum áhyggjum. 

„Þegar ég sé þetta gerast á Íslandi, þá verð ég auðvitað paranojaður. Ég er paranojaður af því að ég er frá Brasilíu. Þegar ég tala við börnin mín þá segja þau við mig að þetta sé nú bara Ísland og að það þurfi ekki að hafa áhyggjur.“ 

Hann sé hins vegar þjálfaður í því að vera á varðbergi eftir uppeldi í Brasilíu.

Lögreglubíll á Klapparstíg.Vísir

„Þannig að þegar ég sé þessa hluti vera að gerast hér niður í bæ, þá að sjálfsögðu verð ég paranojaður. Ég sé þetta bara koma, ég sé að þetta eru að verða erfiðari aðstæður.“

Hann skilur til dæmis ekkert í því hvernig fólk með langan brotaferil geti spígsporað um í miðbænum. Einn slíkur hafi líklega verið handtekinn 250 sinnum í miðbænum.

„Ef manneskja er búin að vera handtekin 250 sinnum, hvað er hann að gera hérna? Á Íslandi, hvað er hann að gera í þessu umhverfi? Hvernig er hann með leyfi til þess að gera það sem hann er að gera án þess að nokkuð gerist?“

Frumvarp í smíðum

Hann segist eiga erfitt með að skilja af hverju útlendingar sem brjóti sífellt af sér geti haldið landvistarleyfi.

„Þurfum við að handtaka erlenda manneskju 250 sinnum til þess að henda þeim úr landinu?“ 

Lögreglan með viðbúnað í Bankastræti.Vísir/KTD

Hann gagnrýnir vinnubrögð lögreglu og segir að oft sé erfitt að fá lögregluna til þess að taka á hlutum og að viðmót lögreglunnar sé oft á tíðum þannig að þau telji borgarana sjálfa eiga að leysa vandann.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur sagt sjálfsagt að samfélagið geri þá kröfu að þeir sem búa hér á landi eða dvelja fari eftir íslenskum lögum. Hún hyggst leggja fram frumvarp á þinginu í vetur sem myndi gera yfirvöldum kleift að svipta fólk alþjóðlegri vernd, gerist það uppvíst að alvarlegum afbrotum. Hún leggur frumvarpið fram í haust, en það myndi aðeins gilda um afbrot framin eftir að lögin taka gildi.

Mál Mohamads Thors Jóhannessonar, áður Mohamads Kourani, hefur verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu. Fyrr í mánuðinum var hann dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal alvarlega líkamrásás og tilraun til manndráps.

Um var að ræða fjórða refsidóminn yfir Mohamad frá því hann kom til landsins í byrjun árs 2017. Þann fyrsta hlaut hann áður en hann fékk samþykkta umsókn sína um alþjóðlega vernd.


Tengdar fréttir

Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum

Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum. 

Mikill fjöldi lýst atburðarásinni við Skúlagötu

Stúlka sem stungin var ítrekað með hníf í bíl við Skúlagötu að lokinni flugeldasýningunni á Menningarnótt er enn í lífshættu. Rannsókn lögreglu er sögð miða vel. Mikill fjöldi fólks varð vitni að árásinni.

Sextán ára drengur í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar

Sextán ára drengur sem er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld var í kvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur til 30. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×