Enski boltinn

Mount meiddur aftur: „Ég vil að þið heyrið frá mér sjálfum hversu pirraður ég er“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mason Mount hefur verið meiðslahrjáður síðan hann kom til Manchester United.
Mason Mount hefur verið meiðslahrjáður síðan hann kom til Manchester United. Ash Donelon/Manchester United via Getty Images

Miðjumaðurinn Mason Mount hjá Manchester United mun missa meira úr vegna meiðsla í læri. Hann neyddist af velli í hálfleik gegn Brighton um síðastliðna helgi og verður frá í nokkrar vikur.

Félagið staðfesti það á heimasíðu sinni að Mount yrði ekki með í næstu leikjum. Liðið leikur næst gegn Liverpool á sunnudaginn áður en landsleikjahlé tekur við.

„Ég vil að þið heyrið frá mér sjálfum hversu pirraður ég er, eins og ég get ímyndað mér að þið séuð líka. Ég mun gera allt til að ná aftur mínu besta formi og hjálpa liðinu,“ skrifaði Mount meðal annars í Instagram færslu sinni þar sem hann sagði frá meiðslunum.

Skilaboðin sem Mount sendi fylgjendum sínum.instagram / @masonmount

Hann var fenginn til félagsins í fyrra frá Chelsea á 55 milljónir punda en hefur aðeins komið við sögu í 20 leikjum fyrir Manchester United vegna síendurtekinna meiðsla.

Hann meiddist einnig í læri í öðrum deildarleiknum í fyrra, þá gegn Tottenham. Í nóvember meiddist hann svo á kálfa og missti fjóra heila mánuði úr.

Hann bætist við meiðslalista Manchester United sem telur nú: Luke Shaw, Tyrell Malacia, Leny Yoro, Victor Lindelöf og Rasmus Höjlund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×