Atvinnulíf

Eigin­konan kvartar undan fífla­gangi á morgnana

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ef Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, er ekki vel undirbúinn, tapar hann iðulega rökræðum við dóttur sína um hvaða föt skuli velja fyrir leikskólann. Guðmundur segir eiginkonuna ekki  mikla morgunmanneskju og hann sjálfan.
Ef Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, er ekki vel undirbúinn, tapar hann iðulega rökræðum við dóttur sína um hvaða föt skuli velja fyrir leikskólann. Guðmundur segir eiginkonuna ekki  mikla morgunmanneskju og hann sjálfan. Vísir/Vilhelm

Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, segir tvær mennskar vekjaraklukkur sjá til þess að hann fari snemma fram úr á morgnana; Önnur er fjögurra ára og hin eins og hálfs árs.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Vakna undantekningalaust milli klukkan sex og sjö á morgnana. Það eru tvær mennskar vekjaraklukkur á heimilinu sem sjá til þess. Ein fjögurra ára og ein eins árs.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Fara fram með börnin og gefa þeim að borða. Skipta um bleyju á þeirri yngri og rökræða við þá eldri um hvaða föt hún á að fara í á leikskólann. Ef ég er ekki nægilega undirbúinn þá lít ég lægra haldi í þeim rökræðum.

Áður en ég legg af stað út í daginn þá kem ég konunni minni fram úr rúminu.

Hún er mun minni morgunmanneskja en ég. Segir mér reglulega að það sé of snemmt fyrir fíflaganginn í mér á morgnana.

Annars byrja ég á því að skutla í leikskólann og bruna síðan í vinnu. Ég tek yfirleitt góðan rúnt yfir vefmiðlana áður en ég byrja á verkefnum dagsins.“

Á mælikvarðanum 1-10; hversu vel stendur þú þig í heimilisstörfunum?

Ég tel að ég standi mig heilt yfir nokkuð vel. 

Í gegnum árin hefur myndast bæði formleg og óformleg verkaskipting á heimilinu. 

Konan mín eldar og ég geng frá. Ég tek bensín og konan klippir neglurnar á börnunum; Konan mín forðast eins og heitan eldinn að taka bensín og ég er skíthræddur að meiða börnin þegar ég klippi á þeim neglurnar!

Við sinnum þvottinum, heimilisþrifum og uppeldinu nokkuð jafnt.

Ég held að 7-7,5 sé nokkuð sanngjörn einkunn. Ég fer í 50% fæðingarorolof um mánaðarmótin, þannig ég trúi því að ég nái að hækka einkunnina upp 8,5.“

Guðmundur notar stafrænar lausnir til að halda utan um skipulagið sitt: Asana, Harvest og Slack. Guðmundur skráir hugmyndir og upplýsingar í Notes en segir tvo öfluga verkefnastjóra Tvist síðan halda öllum á tánum. Almennt markmið er að vera kominn upp í rúm klukkan tíu á kvöldin.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Mikið af spennandi verkefnum framundan hjá auglýsingastofunni TVIST. Sennilega stærsta verkefnið sem er framundan er Bleika slaufan í október en undirbúningur í kringum hana er í fullum gangi. Við erum að starfa náið með Póstinum, Strætó, Origo, Creditinfo og fleiri vörumerki. Allt mjög fjölbreytt og skapandi verkefni.

Í verkefnum utan vinnu, þá erum við hjónin að selja fasteignina okkar sem við höfum búið í yfir síðastliðin fjögur ár. Þetta er falleg fjögurra ra herbergja íbúð í nýju Vogabyggðinni.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Á Tvist notum við stafrænar lausnir á borð við Asana, Harvest og Slack í okkar vinnu. 

Þessar lausnir hjálpa okkur að hafa yfirsýn yfir þau verkefni sem eru í gangi og hvaða skilafrestur er á þeim. Við erum einnig með tvo öfluga verkefnastjóra sem halda manni á tánum. 

Ég nota einnig Notes gríðarlega mikið í tölvunni minni, en þar glósa ég yfirleitt allar hugmyndir og upplýsingar sem tengjast viðkomandi verkefni.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég reyni að vera alltaf kominn upp í rúm í síðasta lagi klukkan tíu en á það til að gleyma mér svolítið yfir sjónvarpinu eða símanum. Þannig ég er yfirleitt að sofna milli klukkan ellefu og hálf tólf. Stundum seinna sem kemur yfirleitt alltaf í bakið á mér morguninn eftir.


Tengdar fréttir

„Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“

Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Elmu orkuviðskipta, mælir með því að allir vinahópar eigi sér sitt lag til að koma sér í gírinn. Í hennar vinkvennahópi er lagið Fernando tekið á góðum stundum og er Katrín ekki frá því að hópurinn hljómi jafnvel betur en sjálf Cher.

Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur

Snorri Másson, ritstjóri eigin fjölmiðils, segist hafa óeðlilega þörf fyrir því að strauja allt. Snorri nýtir tímann á morgnana til að strauja, enda sannfærðist hann um það eitt sinn að nítíu mínútur þyrftu helst að líða frá því að fólk vaknar og þar til það drekkur fyrsta kaffibollann sinn.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×