Innlent

Dagarnir miklu fleiri hjá Davíð og Ingi­björgu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Davíð Oddsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fengu greidda 93 daga annars vegar og 143 daga hins vegar í ótekið orlof þegar þau sátu í stóli borgarstjóra. Davíð er í dag ritstjóri Morgunblaðsins en Ingibjörg starfaði síðast sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Dagur B. Eggertsson fékk greidda 69 ótekna orlofsdaga um áramótin.
Davíð Oddsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fengu greidda 93 daga annars vegar og 143 daga hins vegar í ótekið orlof þegar þau sátu í stóli borgarstjóra. Davíð er í dag ritstjóri Morgunblaðsins en Ingibjörg starfaði síðast sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Dagur B. Eggertsson fékk greidda 69 ótekna orlofsdaga um áramótin. Vísir/SaraRut

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk greidda 143 ótekna orlofsdaga í starfi borgarstjóra. Dagarnir voru 93 hjá Davíð Oddssyni en fyrirkomulag við greiðslu ótekin orlofs var tekið upp þegar hann var borgarstjóri. Markús Örn Antonsson fékk greidda út 90 ótekna orlofsdaga.

Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu. Þar segir að orlofið hafi verið greitt út með reglulegum hætti til ársins 2004 en síðan þá hafi uppgjör ótekinna orlofsdaga farið fram við starfslok hjá öllu starfsfólki Reykjavíkurborgar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lét af störfum sem borgarstjóri um áramótin eftir tíu ára starf. Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að Dagur hefði fengið greiddar 7,9 milljónir króna í orlofsuppgjör. Um er að ræða 69 daga þar sem 21 dagur er orlofs sem hann hafði unnið sér inn á þessu orlofsári og svo 48 dagar í uppsafnað orlof.

Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum hjá Reykjavíkurborg um greidda orlofsdaga fyrri borgarstjóra til samanburðar. Í svörum Reykjavíkurborgar er að finna upplýsingar síðustu rúmu fjörutíu ára sem taka til níu borgarstjóra auk Dags.

Í skriflegu svari Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, samskiptastjóra Reykjavíkurborgar, segir að samkvæmt gögnum borgarinnar virðist hafa verið ákveðið árið 1989 að greiða óteknar orlofstundir til borgarstjóra. Frá 1989 hafi óteknar orlofsstundir verið greiddar út reglulega, en frá 2004 hafi uppgjör ótekinna orlofsdaga farið fram við starfslok eins og hjá öðru starfsfólki Reykjavíkurborgar.

Að neðan má sjá hve marga ónýtta orlofsdaga síðustu tíu borgarstjórar fengu greidda:

Dagur B. Eggertsson í Samfylkingunni lét af starfi borgarstjóra um áramótin síðustu.Vísir/Arnar

Dagur B. Eggertsson (16.6.2014 - 31.12.2023)

Uppgjör: 69 dagar. Áunnið orlof fyrir þetta orlofstímabil var 21 dagur og ótekið eldra orlof var 48 dagar.


Jón Gnarr var borgarfulltrúi Besta flokksins þegar hann var borgarstjóri.Vísir/Vilhelm

Jón Gnarr (15.6.2010 – 15.6.2014)

Uppgjör 2014: 47,6 dagar (samkvæmt viðverukerfi, uppgjör launaskrifstofu ekki staðfest – beðið gagna)


Hanna Birna Kristjánsdóttir var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þegar hún varð borgarstjóri.Vísir/Vilhelm

Hanna Birna Kristjánsdóttir (21.8.2008 – 15.6.2010)

Uppgjör 2010: 41 dagur


Ólafur F. Magnússon var borgarfulltrúi F-listans þegar hann varð borgarstjóri árið 2008.

Ólafur F. Magnússon (24.1.2008 – 21.8.2008)

Uppgjör 2008: 10 dagar


Sjálfstæðismaðurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var borgarfulltrúi í tæp þrjátíu ár. 

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (13.6.2006 – 16.10.2007)

Uppgjör 2007: 23 dagar


Steinunn Valdís Óskarsdóttir var borgarstjóri í eitt og hálft ár. Hún var borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (30.11.2004 – 13.6.2006)

Uppgjör 2006: 21 dagur


Forsíða Alþýðublaðsins árið 1994. Ingibjörg Sólrún var borgarfulltrúi R-listans.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (13.6.1994 – 1.2.2003)

Uppgjör 1995: 12 dagar

Uppgjör 1997: 22 dagar

Uppgjör 1998: 30 dagar

Uppgjör 2000: 18 dagar

Uppgjör 2001: 16 dagar

Uppgjör 2002: 18 dagar

Uppgjör 2003 : 28 dagar

Samtals: 143 dagar árin 1995-2003


Árni Sigfússon var borgarstjóri í Reykjavík og síðar bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Hann var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Árni Sigfússon (17.3.1994-13.6.1994)

Uppgjör 1994: 7.5 dagar


Markús Örn Antonsson var borgarstjóri og síðar útvarpsstjóri. Hann var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Markús Örn Antonsson (16.7.1991-17.3.1994)

Uppgjör 1992: 30 dagar

Uppgjör 1993: 30 dagar

Uppgjör 1994: 30 dagar

Samtals: 90 dagar árin 1992-1994


Árið 1991 þegar Davíð vann Þorstein Pálsson í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins. Í bakgrunni má sjá Ástríði Thorarensen og Hörð Sigurgeirsson. Davíð varð forsætisráðherra það ár eftir níu ár sem borgarstjóri.Vísir/GVA

Davíð Oddsson (27.5.1982-16.7.1991)

Uppgjör 1989: 56 dagar

Uppgjör 1991: 37 dagar

Samtals: 93 dagar 1989 vegna áranna 1982-1989 (56) og 1991 vegna áranna 1989-1991 (37).


Uppgjör annarra bæjarstjóra

Spegillinn á RÚV kannaði hvernig starfslokum bæjarstjóra í nágrannasveitarfélögunum hefði verið háttað. Í Garðabæ hætti Gunnar Einarsson nýlega eftir 17 ár í starfi, Haraldur Sverrisson eftir 15 ár í starfi í Mosfellsbæ og Ármann Kr. Ólafsson eftir tíu ár í Kópavogi.

Í svörum sveitarfélaganna við fyrirspurn RÚV kom fram að vegna ótekins orlofs á orlofsárinu og uppsafnaðs orlofs hefði Gunnar fengið útgreiddar 7,8 milljónir í Garðabæ, Haraldur fékk 9,6 milljónir króna og Ármann fékk um sjö milljónir.

Fréttin var uppfærð. Dagur fékk greiddar 7,9 milljónir við uppgjörið en ekki 9,7 milljónir. Mismunurinn voru launatengd gjöld Reykjavíkurborgar vegna uppgjörsins.


Tengdar fréttir

„Ritstjórinn ræður sér ekki fyrir bræði“

„Enn einn – en þó einhver vanstilltasti og orðljótasti leiðari Morgunblaðsins sem ég hef lesið birtist í morgun. Tilefnið ætti að vera ánægjuefni. Óvissunni hefur verið eytt um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með undirritun í gær.

Ekkert ólöglegt né óalgengt við uppsafnað orlof

Lára V. Júlíusdóttir segir það vera samningsatriði á milli vinnuveitanda og launafólks hvað það getur tekið út ónotað orlof langt aftur í tímann. Það sé hvorki ólöglegt né óalgengt að orlof stjórnenda safnist upp þó svo að tilgangur laganna sé að tryggja launafólki frí.

Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu

Fyrrverandi borgarstjóri segist ekki hafa tekið fullt orlof í tíu ár sem útskýri tíu milljóna króna greiðslu til hans. Sömu reglur gildi um borgarstjóra og alla aðra starfsmenn Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×