Erlent

Hefðu getað komið í veg fyrir á­rásina með leyfi banda­manna

Kjartan Kjartansson skrifar
Íbúðarblokk í Kharkív brennur eftir að rússnesk svifsprengja lenti á henni í dag. Unglingsstúlka er sögð látin og nokkur börn særð.
Íbúðarblokk í Kharkív brennur eftir að rússnesk svifsprengja lenti á henni í dag. Unglingsstúlka er sögð látin og nokkur börn særð. Vísir/Getty

Forseti Úkraínu segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannskæða sprengjuárás Rússa á Kharkív í dag ef vestrænir bandamenn leyfðu Úkraínumönnum að gera árásir á rússneska herflugvelli. Börn létust og særðust í árásinni.

Fjórtán ára gömul stúlka er á meðal að minnsta kosti fimm óbreyttra borgara sem féllu þegar Rússar gerðu árás á borgina Kharkív í Austur-Úkraínu í dag. Rússneskar svifsprengjur lentu meðal annars á leikvelli og íbúðablokk í þessari næststærstu borg landsins.

Tæplega sextíu til viðbótar særðust í árásinni, að sögn Olegs Sinegubov, héraðsstjóra Kharkív. Af þeim sagði hann tuttugu alvarlega særða. Af sumum þyrfti að fjarlægja útlimi. Níu börn væru á meðal þeirra sem særðust. Sinegubov sagði að árásin hefði verið gerð frá Belgorod, handan landamæranna í Rússlandi, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

AP-fréttastofan segir að Rússar hafi notað svonefndar svifsprengjur sem er sleppt úr flugvélum. Hún hefur jafnframt eftir Sinegubov að sex séu látnir.

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, sagði að Rússar hefðu ráðast á „venjulegt fólk“ í Kharkív. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir árásina ef Úkraínumenn fengu leyfi frá vestrænum bandamönnum sínum til þess að ráðast á rússneska herflugvelli þaðan sem flugvélarnar sem sleppa svifsprengjunum eru gerðar út.

„Við þurfum sterkar ákvarðanir frá bandamönnum okkar til þess að stöðva þennan hrylling,“ sagði Selenskíj og kallaði eftir auknum loftvörnum og langdrægum vopnum á samfélagsmiðlum í dag.

Bridget Brink, sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, sagði að gera þyrfti Rússa ábyrga fyrir stríðsglæpum sem þeir hefðu framið í Kharkív. Bandaríkjastjórn hefur aðeins veitt Úkraínumönnum heimild til þess að ráðast á skotmörk í Rússlandi nálægt Kharkív og aðeins til þess að svara rússneskum árásum eða til þess að fyrirbyggja þær.

Úkraínumenn fengu nokkrar F-16 orrustuþotur frá Bandaríkjastjórn. Ein þeirra hrapaði á ónefndum stað í Úkraínu á mánudag.AP/Efrem Lukatsky

Selenskíj rak fyrr í dag yfirmann flughersins, fjórum dögum eftir að flugmaður bandarískra F-16 orrustuþotu fórst þegar hún hrapaði í sprengjuárás Rússa. Herforinginn hafði áður sakað þingkonu sem gaf í skyn að bandarísk Patriot-stýriflaug sem Úkraínumenn nota hafi hæft þotuna fyrir mistök um ærumeiðingar. Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki neitað því beint að bandarísk eldflaug hafi grandað þotunni.


Tengdar fréttir

Lítil stelpa á leikvelli lést í sprengjuárás

Fjórtán ára gömul stelpa sem stödd var á leikvelli er meðal fimm látinna í Kharkiv borg í Úkraínu eftir sprengjuárásir Rússa. Fjörutíu til viðbótar hafa slasast vegna árásanna það sem af er degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×