Fótbolti

FIFA tekur enn enga á­kvörðun um að banna Ísrael

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino er forseti FIFA en Alþjóða knattspyrnusambandið frestar því enn að taka ákvörðun í erfiðu máli.
Gianni Infantino er forseti FIFA en Alþjóða knattspyrnusambandið frestar því enn að taka ákvörðun í erfiðu máli. Getty/Pascal Le Segretain

Alþjóða knattspyrnusambandið hefur seinkað því að taka á beiðni Palestínumanna um að banna Ísrael frá alþjóðlegum fótbolta.

Framkvæmdaráð FIFA hefur frestað ákvörðunartöku sinni fram í október. Palestínumenn hafa beðið svara frá því í maí. Knattspyrnusamband Palestínu vill að Ísrael verði sett í bann vegna árása sinna og hernaðar á Gaza ströndinni.

Hryllingurinn á Gaza hefur staðið yfir síðan í byrjun október í fyrra

Ísraelar hafa verið sakaðir um þjóðarmorð og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem krafist var tafarlauss vopnahlés. Slíkum beiðnum miðar hægt og árásir Ísraelsmanna hafa haldið sleitulaust áfram.

Knattspyrnusamband Palestínu sendi inn beiðni um bann í maí síðastliðnum og vildi að málið yrði tekið fyrir á ársþingi Alþjóða knattspyrnusambandsins í júlí.

Rússar voru settir í bann vegna innrásar sinnar í Úkraínu og rússnesk félög og landslið hafa ekki tekið þátt í alþjóðlegum fótbolta frá því í febrúar 2022.

FIFA gaf út að lögfræðimat yrði kynnt fyrir framkvæmdaráðinu 31. ágúst. Ráðið tók enga afstöðu og ýtti málinu áfram yfir á fund þeirra í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×