Lífið

Sau­tján tíma ferða­lag með krefjandi Steinda fram­undan

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þeir Auddi og Steindi rétt fyrir brottför á Keflavíkurflugvelli.
Þeir Auddi og Steindi rétt fyrir brottför á Keflavíkurflugvelli. facebook

„Þetta er stundum eins og að ferðast með þriðja barninu sínu,“ segir skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal um sautján tíma ferðalag til Nýja Sjálands sem framundan er hjá honum og Steinda Jr. Saman eru þeir lið í nýrri Draumsseríu sem væntanleg er á Stöð 2 í febrúar.

Tökur eru að hefjast á þáttaröðinni en í hinu liðinu verða engir aukvisar, að minnsta kosti ekki þegar það kemur að skemmtun. Pétur Jóhann og Sveppi Krull halda í þessum töluðu orðum til Suður-Afríku til að etja kappi við þá Audda og Steinda. 

Um er að ræða fimmtu þáttaseríu Draumanna.

„Við erum núna að pakka og horfa á United tapa, þannig það liggur ekkert mjög vel á mér eins og stendur,“ segir Auddi í samtali við Vísi. Hann talar frá Katar. Þaðan eiga þeir flug til Nýja-Sjálands sem verður fyrsti leggur draumsins. Fleira segist Auddi ekki vita um mánaðarferðalagið framundan. 

„Ég veit bara að við erum að fara til Nýja Sjálands vegna þess að við vorum sérstaklega spurðir hvort við myndum leggja það á okkur.“

„Hér eru líka Fannar Scheving tökumaður og klippari, og Fannar Sveins pródúsent. Bene­dikt Vals­son er síðan hinu megin með Sveppa og Pétri þannig við erum með Hraðfréttagengið með okkur. Þeir fara til Suður-Afríku en svo hittumst við í lokin í svona „Final-Showdown“,“ segir Auddi.

Spurður hvert uppleggið fyrir næsta mánuð sé segir hann:

„Fyrsta upplegg bara að koma sér til Nýja Sjálands. Við lendum um klukkan fjögur um nótt þannig við tökum einn dag í „recovera“  en svo verður þetta bara númer eitt, tvö og þrjú að gera gott sjónvarp.“

Auddi er strax farinn að furða sig á liðsfélaganum. 

„Steindi Jr fer víst ekki á WiFi erlendis. Ætlar ekki að láta hakka inn í kerfið sitt...þetta verður langur mánuður!“ skrifar hann á X. 

„Þetta er bara prinsipp-mál hjá honum,“ útskýrir Auddi. „Ég spurði hann hver ætti að reyna að komast í símann hans en það er fátt um svör. Það nýjasta hjá honum núna er að tala um að vera að „spila á líkamann sinn eins og fiðlu,“ segir Auddi. 

„Það þýðir sem sagt að taka enga sénsa og hafa allt samkvæmt venju. Hann ætlar ekki að borða fisk, eða fara í sund eða gufu. Spila á líkamann eins og fiðlu. Þetta er stundum eins og að ferðast með þriðja barninu sínu.“


Tengdar fréttir

Hörðustu konur veraldar lúbörðu Audda og Steinda

Cholitas er ættbálkur kvenna sem búið hafa í Andersfjöllunum í aldir og fengu þeir Auðunn Blöndal og Steindi þá áskorun í síðasta þætti af Suður-ameríska drauminum að sigra þær.

Allur heimurinn undir í nýjum Draumi

Stöð 2 hefur ákveðið að ráðast í framleiðslu á nýrri þáttaröð af skemmtiþáttunum „Draumurinn“ þar sem Auddi, Steindi, Sveppi og Pétur Jóhann skipa tvö lið sem þeysast um heiminn og leysa ævintýralega skemmtilegar þrautir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×