Enski boltinn

„Munum eiga góða mögu­leika á að lyfta bikar“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Erik Ten Hag á hliðarlínunni í dag en í forgrunni má sjá Arne Slot knattspyrnustjóra Liverpool.
Erik Ten Hag á hliðarlínunni í dag en í forgrunni má sjá Arne Slot knattspyrnustjóra Liverpool. Vísir/Getty

Erik Ten Hag segir að Manchester United segist ekki vera Harry Potter og geti töfrað fram úrslit. Hann segir að uppbygging nýs liðs hjá Manchester United sé enn í gangi.

Manchester Untied tapaði illa á heimavelli í dag í ensku úrvalsdeildinni þegar erkifjendurnir í Liverpool voru í heimsókn. Liverpool vann 3-0 sigur sem var síst of stór.

Fyrir leik var Manuel Ugarte, nýjasti leikmaður United, kynntur fyrir stuðningsmönnum en hann var keyhptur frá PSG fyrir 50,5 milljónir punda á dögunum. Alls voru sex leikmenn sem Ten Hag hefur keypt í byrjunarliði United í dag en hann sagðist þó ekki geta töfrað fram úrslit í leikjum liðsins.

„Ég er ekki eins og Harry Potter, þú verður að átta þig á því. Þrír leikmenn voru að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik á timabilinu, Manuel Ugarte spilaði ekki í eina mínútu því hann þarf að byggja upp leikform. Síðan þurfum við að koma honum inn í liðið. Ég er viss um að hann mun skila sínu til liðsins. Það mun taka tvær vikur, jafnvel mánuð. Það er sama staðan hjá mörgum leikmönnum,“ sagði Ten Hag í viðtali við BBC.

Ten Hag virtist frekar pirraður í viðtölum eftir leikinn og sagðist hafa aðra sýn en blaðamaður sem vildi meina að lið United væri að gera sömu mistökin og fyrir tveimur árum síðan.

„Þá værum við ekki að vinna bikara og stærri liðin. Ég vil ekki tala um það jákvæða í dag. Þessi ósigur særir okkur og okkar aðdáendur.“

„Þetta er þriðji leikurinn á tímabilinu. Ég þarf að útskýra þetta svo oft, við erum að byggja nýtt lið. Við verðum góðir en það er augljóst að við þurfum að bæta okkur. Ég er sannfærður um að í lok tímabilsins munum við eiga góða möguleika á að lyfta bikar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×