Innlent

Geimvísindastofnun Ís­lands stóð fyrir fundi í Grósku

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hélt ávarp á ráðstefnunni.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hélt ávarp á ráðstefnunni. Vísir/Sigurjón

Opinn fundur Alþjóðlega vinnuhópsins um kannanir reikistjörnunnar Mars (IMEWG) fór fram í Grósku í kvöld. IMEWG kom saman hér á landi í boði Geimvísindastofnun Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem fundurinn er opinn almenningi.

50 fulltrúar frá helstu geimstofnunum heims komu saman í Grósku, þar með talið Richard Davis, starfsmaður NASA. Davis sagði í samtali við fréttastofu að það væru fjölmörg tækifæri fyrir geimstofnannir á Íslandi.

„Síðustu 15 til 20 ár höfum við lært að á Mars eru jöklar neðanjarðar. Þar er mikil eldfjallavirkni. Mikið af landslaginu hér á Íslandi er ótrúlega líkt því sem finnst á Mars. Þú getur lært mikið og gert tilraunir hér og þróað tæknina. Allt þetta skapar mikið af tækifærum.“

Hann bætti við að það væri dásamlegt að vera á Íslandi og að stofnunin kynni vel að meta það að koma hingað til lands. 

Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða, benti á að alþjóðlegar geimstofnannir hefðu mikinn áhuga á Íslandi og að koma hingað til að prófa tæki og tól sem eru notuð sérstaklega í marsferðum. 

„Landslagið og jarðfræðin er að sumi leyti svipuð. Líka þær áskoranir sem þú lendir í þegar þú ert komin með tækin til mars munu þau standast álagið. Geta þau þolað sem þau þurfa að þola og svo framvegis.

Fólk kom saman í Grósku í kvöld á opnum fundi.Vísir/Sigurjón

Nasa sérstaklega er búið að koma hérna í margar ferðir í gegnum síðustu ár. Svo já þau eru búin að koma hingað nokkuð oft.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×