Fótbolti

Fær tíu milljónir á dag í út­borguð laun

Sindri Sverrisson skrifar
Ivan Toney er mættur til Sádi-Arabíu og líklegur til að raða inn mörkum þar.
Ivan Toney er mættur til Sádi-Arabíu og líklegur til að raða inn mörkum þar. Getty/Yasser Bakhsh

Peningar gætu hafa haft eitthvað með það að gera að hinn 28 ára gamli framherji Ivan Toney skyldi ganga til liðs við Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Þar fær hann að minnsta kosti svimandi há laun.

The Telegraph greinir frá því að Toney, sem var seldur frá Brentford fyrir 40 milljónir punda, fái 400.000 pund á viku í laun. Það jafngildir rúmlega 70 milljónum króna, eða 10 milljónum á dag. Þar að auki er enginn tekjuskattur í Sádi-Arabíu og því er um útborguð laun að ræða.

Ekki nóg með það heldur fara laun Toney hækkandi, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og hann gæti því fengið 500.000 pund á viku eða rúmar 90 milljónir króna, sem gerir 12,9 milljónir á dag eða meira en hálfa milljón króna á hverjum einasta klukkutíma, líka þegar hann sefur.

Toney fer til Al-Ahli á þeim aldri sem að fótboltamenn eru oft við það að ná toppnum á sínum ferli. Hann var í enska landsliðshópnum á EM í sumar og kom þrisvar inn á sem varamaður, þar á meðal í úrslitaleiknum gegn Spáni.

Toney skoraði grimmt fyrir Brentford og var til að mynda með 20 mörk tímabilið 2022-23, og skoraði svo fjögur mörk í fyrstu fimm leikjunum eftir að hafa snúið aftur úr átta mánaða banni fyrir brot á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins.

Hann lék ekkert með Brentford í fyrstu leikjum yfirstandandi tímabils, á meðan að óvissa ríkti um framtíð hans, og var heldur ekki valinn í landsliðshóp Lee Carsley fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×