Veður

Slær sums staðar í storm norð­vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Það er orðið frekar haustlegt um að litast í höfuðborginni.
Það er orðið frekar haustlegt um að litast í höfuðborginni. Vísir

Veðurstofan spáir hvassri suðvestanátt og að sums staðar slái í storm þar sem hvassast verður á norðvestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á norðanvestanverðu og norðanverðu landinu fram á kvöld.

Gera má ráð fyrir að vindur geti farið í 30 til 35 metra á sekúndu á stöku stað.

Á vef Veðurstofunnar segir að með kvöldinu fari svo að lægja en að vindáttin verði svipuð fram á laugardag.

„Þeir sem verða á ferðinni á bílum sem taka á sig mikinn vind eða með aftanívagna þurfa að íhuga hvort fresta eigi ferðalögum þar til það versta er yfirstaðið.

Gular viðvaranir eru í gildi norðantil á landinu. Hvassast verður norðvestantil.Veðurstofan

Einhver væta, einkum í formi skúra mun verða viðvarandi sunnan- og vestantil á landinu og þá má reikna með hita á bilinu 8 til 12 gráður, en um landið norðaustanvert verður mun bjartara yfir og hiti á bilinu 12 til 18 stig og jafnveg gætum við séð tölur um og yfir 20 stigin þegar best lætur,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og súld með köflum, en hvessir og fer að rigna vestantil um kvöldið. Hægari vindur og léttskýjað austanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s, skýjað með köflum og líkur á smáskúrum á Suður- og Vesturlandi, en annars bjartviðri. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.

Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum á norðanverðu landinu, en stöku skúrir syðra. Kólnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag: Ákveðin norðanátt og skúrir eða slydduél norðan- og austanlands, en annars bjartviðri. Hiti 2 til 10 stig að deginum, mildast syðst.

Á miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi kalda norðanátt með úrkoma fyrir norðan en björtu veðri syðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×