Var alltaf að fara á klósettið en komst í undanúrslit Sindri Sverrisson skrifar 5. september 2024 09:02 Karolina Muchova vann sig inn í undanúrslit á US Open, þrátt fyrir veikindi. Getty/Robert Prange Karolina Muchova frá Tékklandi er komin í undanúrslit á Opna bandaríska mótinu í tennis, annað árið í röð. Sigurinn í 8-manna úrslitum var þó erfiður því Muchova þurfti sífellt að fara á klósettið eftir að hafa glímt við veikindi.
Muchova vann hina brasilísku Beatriz Haddad Maia í tveimur settum og það nokkuð örugglega, 6-1 og 6-4. En það vakti athygli að hún hljóp á klósettið eftir sigurinn í fyrra settinu, aftur í stöðunni 2-1 og enn í stöðunni 3-2, áður en hún fékk svo aðstoð læknis og sjúkraþjálfara í stöðunni 4-3, í seinna settinu. „Þetta var skrýtinn leikur,“ viðurkenndi Muchova eftir sigurinn. „Ég glímdi við vandræði sem ég vil ekki tjá mig frekar um en ég þurfti alltaf að vera að hlaupa á klósettið og til baka,“ sagði Muchova. „Mér þykir fyrir því ef þetta truflaði einhvern en ég átti engra annarra kosta völ,“ bætti hún við. Muchova mun í undanúrslitunum mæta Jessicu Pegula sem gerði sér lítið fyrir og sló út efstu konu heimslistans, Iga Swiatek, með sigri í tveimur settum, 6-2 og 6-4. Undanúrslit á mótinu hefjast í dag.
Tennis Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Fleiri fréttir „Hefurðu enga sómakennd?“ Hefur Ben Simmons náð botninum? Dagskráin í dag: Bland í poka úr ýmsum áttum Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Russell á ráspól í fyrramálið Andy Murray þjálfar erkióvininn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Sjá meira