Fótbolti

Hákon með brotið bein í fæti og ekki fleiri landsleikir á árinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson missir af leikjum í Meistaradeildinni auk þess að missa af landsleikjum.
Hákon Arnar Haraldsson missir af leikjum í Meistaradeildinni auk þess að missa af landsleikjum. Getty/Ahmad Mora

Íslenska landsliðið verður væntanlega án Hákonar Arnars Haraldssonar út árið vegna þess að meiðsli hans frá æfingu liðsins eru það alvarleg.

Hákon dró sig út úr íslenska landsliðshópnum í gær og verður því ekki með íslenska landsliðinu í tveimur fyrstu leikjum Þjóðadeildarinnar. Hákon mun líka missa af leikjunum í október og nóvember.

Samkvæmt frétt hjá stórblaðinu L’Équipe þá er Hákon Arnar með brotið bein í fæti. Lille verður því án hans næstu þrjá mánuði.

Hákon hefur ekki aðeins verið að spila vel fyrir íslenska landsliðið heldur einnig fyrir Lille sem spilar í Meistaradeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×