Handbolti

Skarp­héðinn tryggði Haukum sigurinn með frá­bæru marki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Skarphéðinn Ívar Einarsson var hetja Haukanna í kvöld en hann kom til liðsins frá KA í sumar.
Skarphéðinn Ívar Einarsson var hetja Haukanna í kvöld en hann kom til liðsins frá KA í sumar. @haukar_handbolti

Haukar unnu 27-26 sigur á Afturelding í fyrstu umferð Olís deild karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld.

Skarphéðinn Ívar Einarsson var hetja Hauka því hann skoraði sigurmarkið með frábæru langskoti nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Aron Rafn Eðvarðsson spilaði ekki mikið með Haukum í kvöld en gaf liðinu tækifæri á því að vinna leikinn með því að verja víti skömmu fyrir leikslok.

Skarphéðinn Ívar skoraði þetta sigurmark í sínum fyrsta deildarleik með Haukum en hann kom til liðsins í sumar frá KA.

Þráinn Orri Jónsson var markahæstur hjá Haukum með sex mörk en Skarphéðinn Ívar skoraði fjögur mörk eins og Andri Fannar Elísson.

Birgir Steinn Jónsson skoraði átta mörk fyrir Mosfellinga og Blær Hinriksson var með sjö mörk.

Haukar komust í 2-0 í byrjun leiks en Mosfellingar jöfnuðu strax í 2-2 og eftir það var jafnt á flestum tölum í fyrri hálfleiknum.

Afturelding var samt lengst skrefinu á undan, komst meðal annars í 7-5 og 10-8 en Haukunum tókst að jafna og voru komnir yfir fyrir hálfleik. Ihor Kopyshynskyi jafnaði síðan metin í 14-14 fyrir hálfleiksflautið.

Áfram var jafnt á flestum tölum í síðari hálfleik. Haukarnir voru aftur á móti komnir með frumkvæðið ólíkt því hvernig þetta var lengst af fyrir hálfleik.

Haukarnir voru síðan komnir þremur mörkum yfir, 23-20, þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður. Haukamarkvörðurinn Vilius Rasimas var Mosfellingum erfiður ekki síst í seinni hálfleiknum þegar Haukaliðið var að ná upp forskotinu.

Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, tók gott leikhlé og hans menn minnkuðu muninn strax í eitt mark, 23-22.

Haukarnir misstu samt ekki frumkvæðið en losuðu sig heldur ekki við gestina. Blær Hinriksson jafnaði metin í 25-25 með frábæru marki og síðust fjórar mínúturnar voru æsispennandi.

Þráinn Orri Jónsson kom Haukum aftur yfir í 26-25 en Ihor Kopyshynskyi jafnaði í næstu sókn.

Haukar skutu í slá og Blær gerði vel hinum megin með því að fiska vítakast. Aron Rafn Eðvarðsson varði hins vegar víti frá Birgi Stein tuttugu sekúndum fyrir leikslok og Haukar fengu lokasókn leiksins.

Þar var spilað upp fyrir Skarphéðinn sem blómstraði í hetjuhlutverkinu í fyrsta deildarleiknum í Haukabúningnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×