Fótbolti

Alexandra í um­spil um sæti í riðla­keppni Meistara­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alexandra (fremri röð lengst til hægri) og stöllur einu skrefi nær riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Alexandra (fremri röð lengst til hægri) og stöllur einu skrefi nær riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Fiorentina

Alexandra Jóhannsdóttir spilaði rúma klukkustund þegar Fiorentina lagði Ajax 1-0 í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta.

Alexandra hóf leik á miðri miðjunni en leikur liðanna fór fram á heimavelli í Bröndby í Kaupmannahöfn í Danmörku. Alexandra lék 64 mínútur og var því farin af velli þegar Madelen Janogy skoraði sigurmarkið á 82. mínútu leiksins.

Lokatölur 1-0 og Fiorentina komið í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×