Handbolti

Grótta hrelldi ÍBV í fyrsta leik en meistararnir fóru á flug

Sindri Sverrisson skrifar
Thea Imani Sturludóttir skoraði fimm mörk fyrir Val í dag, í fyrstu umferð Olís-deildarinnar.
Thea Imani Sturludóttir skoraði fimm mörk fyrir Val í dag, í fyrstu umferð Olís-deildarinnar. vísir/Anton

Íslandsmeistarar Vals hófu leiktíðina í Olís-deild kvenna í handbolta á stórsigri gegn ÍR, 35-26. Nýliðar Gróttu, sem spáð er neðsta sæti, voru nálægt því að fá stig gegn ÍBV en Eyjakonur unnu 23-21 sigur á Seltjarnarnesinu.

Leikurinn á Nesinu var ansi kaflaskiptur en ÍBV var 10-8 yfir í hálfleik. Grótta var svo 16-15 yfir þegar korter var til leiksloka en þá stakk ÍBV af og komst í 22-17. 

Nýliðarnir gáfust hins vegar ekki upp og höfðu minnkað muninn í eitt mark, 22-21, þegar enn var ein og hálf mínúta eftir. Þá skoraði Sunna Jónsdóttir sitt áttunda mark og innsiglaði sigur Eyjakvenna.

Miðað við tölfræðina á vef HB Statz þá var Marta Wawrzykowska hins vegar maður leiksins en hún varði alls 24 skot í marki ÍBV, eða meira en helming skota sem hún fékk á sig. Þar af varði hún tvö af fimm vítum Gróttu, annað á lokamínútunni.

Daðey Ásta Hálfdánsdóttir og Karlotta Óskarsdóttir voru markahæstar hjá Gróttu með fimm mörk hvor og Rut Bernódusdóttir skoraði fjögur. Hjá ÍBV var Sunna með átta mörk úr tíu skotum og Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sex.

ÍR hélt í við meistarana í fyrri hálfleik

ÍR skoraði fyrstu tvö mörkin í leiknum gegn Val en meistararnir komust svo yfir í 9-8 og voru 17-14 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik stakk Valsliðið svo algjörlega af.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og Elísa Elíasdóttir fimm mörk úr jafnmörgum skotum, fyrir Val, samkvæmt HB Statz. Thea Imani Sturludóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu einnig fimm mörk hvor.

Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með fimm mörk en Karen Tinna Demian, Hanna Karen Ólafsdóttir og Katrín Tinna Jensdóttir skoruðu fjögur mörk hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×