Norðurlandamótið í MMA (blönduðum bardagaíþróttum) fór fram í Danmörku á dögunum en þátttakendur á mótinu komu frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Hvert land mátti senda einn keppenda í hverjum þyngdarflokki. Alls kepptu fjórir keppendur fyrir Íslands hönd og voru þeir allir úr Mjölni en þetta voru þeir, Aron Franz Bergmann Kristjánsson í léttivigt, Mikael Aclipen í veltivigt, Logi Geirsson í millivigt og Júlíus Bernsdorf í þungavigt. Gunnar Nelson fylgdi hópnum sem þjálfari ásamt fleirum.
Segja má að Logi hafi tryggt sér Norðurlandameistaratitilinn með yfirburðum. Allir dómararnir gáfu Loga sigur í öllum þremur lotunum. Frumraun í flottari kantinum hjá Mjölnisstráknum og gullið sérstaklega sætt. Það er vægast sagt ekki hægt að biðja um betri byrjun á ferlinum sem vonandi verður langur og farsæll.
Íslendingurinn mætti þó ekki alveg blautur á bakvið eyrun til leiks á Norðurlandamótið. Logi hefur sýnt mátt sinn og megin á uppgjafarglímumótum hérlendis og er meðal ananrs ríkjandi Íslandsmeistari í sínum flokki.
Fleiri gera það gott
Þá vann Mikael Aclipen til silfurverðlauna í sínum flokki, eftir mjög umdeilt tap í úrslitaviðureign gegn heimamanninum Patrick Sandager. Mikael hafði áður unnið Finnann Theo Kolehmainen örugglega með hengingartaki í fyrstu lotu í undanúrslitum. Bardaginn gegn Sandager fór í dómaraúrskurð sem féll með Sandagen.
Þá þurfti Júlíus Bernsdorf einnig að sætta sig við silfur eftir tap á dómaraúrskurði gegn heimamanninum Jakob Dyrup. Bardaginn fór allur fram standandi þar sem þeir skiptust á höggum í þrjár lotur og hlaut heimamaður sigur, réttilega að þessu sinni.
Aron Franz komst ekki í úrslit eftir tap gegn heimamanninum Sigurd Axel Rømer í undanúrslitum en bardaginn vannst á tæknilegu rothöggi í þriðju lotu.
Við Íslendingar getum hins vegar vel við unað með eitt gull og tvö silfur þó við hefðum svo sannarlega vilja tvö gull þar sem Mikael hefði klárlega átt að fá dómaraúrskurðinn sín megin í úrslitaviðureigninni gegn heimamanninum