Fótbolti

Byrjunar­lið Ís­lands: Þrjár breytingar frá sigrinum á Laugar­dals­velli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen kemur inn í byrjunarliðið.
Andri Lucas Guðjohnsen kemur inn í byrjunarliðið. Getty Images/Mateusz Slodkowski

Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide gerir þrjár breytingar á byrjunarliði milli leikja í Þjóðadeild karla í knattspyrnu. Þeir Andri Lucas Guðjohnsen, Kolbeinn Birgir Finnsson og Guðlaugur Victor Pálsson koma inn í byrjunarliðið.

Ísland lagði Svartfjallaland 2-0 í fyrstu umferð Þjóðadeildarinnar á föstudaginn var. Þar sem það er stutt á milli leikja hefur Åge og teymi hans ákveðið að gera þrjár breytingar á byrjunarliðinu milli leikja. 

Ákveðið hefur verið að skipta um báða bakverði, Guðlaugur Victor Pálsson kemur inn fyrir Alfons Sampsted og Kolbeinn Birgir Finnsson kemur inn fyrir Loga Tómasson. Þá kemur Andri Lucas Guðjohnsen inn í framlínuna í stað Orra Steins Óskarssonar. 

Leikur Tyrklands og Íslands hefst klukkan 18:45 í kvöld og verður hann sýndur í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst hálftíma fyrr, klukkan 18:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×