Fótbolti

Sjáðu þrennu Aktürkoğlu og Guð­laug Victor stanga boltann í netið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Muhammed Kerem Aktürkoğlu kom Tyrkjum yfir.
Muhammed Kerem Aktürkoğlu kom Tyrkjum yfir. Mehmet Emin Menguarslan/Getty Images

Tyrkland vann Ísland 3-1 í 2. umferð Þjóðadeildar karla í knattspyrnu. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Um er að ræða leik í 2. umferð en Ísland vann Svartfjallaland á föstudaginn var 2-0 á Laugardalsvelli á meðan Tyrkir gerðu markalaust jafntefli í Wales. Þeir bættu upp fyrir það þegar þeir skoruðu eftir aðeins 79 sekúndur. 

Klippa: 1-0 fyrir Tyrkland

Guðlaugur Victor Pálsson kom inn í byrjunarlið Íslands eftir að sitja á bekknum gegn Svartfjallalandi og fagnaði því með þessum líka hörkuskalla eftir hornspyrnu fyrirliðans Jóhanns Bergs Guðmundssonar. 

Klippa: Ísland jafnar

Staðan var 1-1 í hálfleik en snemma í síðari hálfleik komust Tyrkir 2-1 yfir. Þar var að verki sami leikmaður og skoraði fyrra mark þeirra.

Klippa: 2-1 fyrir Tyrkland

Hann fullkomnaði svo þrennu sína undir lok leiks. Lokatölur í Tyrklandi 3-1 heimamönnum í vil.

Klippa: 3-1 fyrir Tyrkland



Fleiri fréttir

Sjá meira


×