Sport

Hneykslan­leg hand­taka Hill vekur hörð við­brögð: „Ég er í á­falli“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tyreek Hill kveðst enn í áfalli eftir handtökuna.
Tyreek Hill kveðst enn í áfalli eftir handtökuna. Samsett/Getty/Skjáskot

Myndskeið af handtöku Tyreeks Hill, útherja Miami Dolphins í NFL-deildinni, úr líkamsmyndavél lögreglumanna sem framkvæmdu handtökuna hefur verið gefið út. Hegðun lögreglumannana þykir hneykslanleg og hefur Hill gagnrýnt viðkomandi.

Myndskeiðið er tæplega fjögurra mínútna langt. Hill sést búa sig undir að stíga út úr bílnum þegar hann er rifinn út og þrykkt í jörðina og handjárnaður. Ekki dugði að hafa færri en fjóra lögreglumenn við handtökuna fyrir meint umferðarlagabrot útherjans.

Lögreglan í Miami-Dade segir Hill hafa verið ósamvinnuþýðan við handtökuna.

Mikil umræða hefur verið um hegðun lögreglumanna og ofbeldis í garð þeldökkra Bandaríkjamanna. Lögreglumennirnir hafa sætt harðri gagnrýni eftir að handtakan fór í dreifingu.

Hill var sjálfur ekki lengi að láta í sér heyra á samfélagsmiðlinum X eftir að myndirnir voru gerðar opinberar: „Nú er tími fyrir breytingar“.

Þá mætti Hill í viðtal vegna málsins á CNN vestanhafs í gær.

„Ég var í sjokki. Þetta var brjálað vegna þess að þetta gerðist allt svo hratt. Þetta gerðist svo hratt að ég tók ekki inn allt sem gekk á,“ segir Hill við CNN.

„Ég hreyfði mig ekki því ég er að glíma við meiðsli. Ég spila líkamlega krefjandi íþrótt og ég býst við að lögreglumönnunum hafi ekki þótt ég gera hlutina eins og þeim hentaði,“ segir Hill. „Ég var að reyna það en ég er ennþá í áfalli eftir þetta. Ég skammast mín.“

Handtakan átti sér stað um tveimur klukkustundum fyrir leik Miami Dolphins við Jacksonville Jaguars, rétt fyrir utan heimavöll Dolphins í Miami. Liðsfélagar Hill sjást á myndskeiðinu skipta sér af því sem þar gengur á.

Hill skoraði eitt snertimark í 20-17 sigri Dolphins og fagnaði marki sínu með því að setja hendur fyrir aftan bak, líkt og handjárnaður.


Tengdar fréttir

Tyre­ek Hill slengt hand­járnuðum í jörðina á leik­degi

Tyreek Hill, leikmaður Miami Dolphins í NFL-deildinni, vonar að fall sé fararheill en hann var handtekinn á leið sinni á heimavöll Dolphins í dag. Höfrungarnir leika fyrsta leik sinn á leiktíðinni síðar í dag, allt í beinni á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×