Innlent

Svona var setning Al­þingis með nýjum for­seta og biskup

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Halla mætir til þingsettningar í dag.
Halla mætir til þingsettningar í dag. vísir/Vilhelm

Setningarathöfn Alþingis hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Fylgst verður með athöfninni í streymi á Stöð 2  Vísi þar sem stuðst er við útsendingu Ríkisútvarpsins á Alþingisvefnum. Sjá útsendingu að neðan.

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Elínborgu Sturludóttur dómkirkjupresti. Guðmundur Sigurðsson dómorganisti stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar og leikur á orgel. Sigurður Flosason saxófónleikari leikur með í forspili og eftirspili.

Að guðsþjónustu lokinni er gengið aftur til þinghússins og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setur Alþingi, 155. löggjafarþing. Schola Cantorum syngur við þingsetninguna.

Hlé verður gert á þingsetningarfundi til kl. 16:00. Þá verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2025 útbýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×