Innlent

Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópa­vogi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Atburðirnir hræðilegu áttu sér stað við Nýbýlaveg í Kópavogi þann 31. janúar síðastliðinn.
Atburðirnir hræðilegu áttu sér stað við Nýbýlaveg í Kópavogi þann 31. janúar síðastliðinn. Visir/Vilhelm

Aðalmeðferð í máli fimmtugrar konu sem sætir ákæru fyrir að orðið sex ára syni sínum að bana og reynt að bana eldri syni sínum í janúar er hafin í Héraðsdómi Reykjaness. Þinghaldið er lokað fjölmiðlum.

Í ákæru á hendur konunni er henni gefið að sök að hafs svipt sex ára son sinn lífi með því að setja kodda yfir andlit hans og með báðum höndum þrýst koddanum yfir vit hans og þrýst á háls hans og efri hluta brjóstkassa og ekki linað þau tök fyrr en hún varð þess áskynja að hann var látinn. Drengurinn lést af völdum köfnunar.

Í kjölfarið hafi hún farið inn í herbergi eldri sonar síns þar sem hann lá sofandi. Þar er hún sögð hafa tekið fyrir vit hans með annarri hendi og í hnakka hans með hinni og þannig þrýst andliti hans niður í rúmið, þannig að hann gat ekki andað. Drengurinn hafi vaknað og tekist að losa sig úr taki móður sinnar.

Móðirin var búsett í Kópavogi með sonum sínum tveimur, sex og ellefu ára. Faðir drengjanna er einnig búsettur hér á landi en þó ekki á sama stað. Fólkið hefur búið á Íslandi í nokkur ár undir alþjóðlegri vernd.

Móðirin hefur verið metin sakhæf af matsmönnum. Hún hefur sjálf játað háttsemina en vísað til þess að hafa verið í slíku ástandi þegar ódæðið var framið að það væri refsilaust.

Faðir drengjanna krefur móðurina um átta milljónir króna í miskabætur. Þá er krafist tíu milljóna króna í bætur fyrir hönd eldri sonarins. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari flytur málið fyrir hönd ákæruvaldsins og Eva Dóra Kolbrúnardóttir gætir hagsmuna ákærðu.

Reikna má með dómi í málinu eftir um fjórar vikur.


Tengdar fréttir

Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda

Kona, sem hefur sætt gæsluvarðhaldi óslitið frá því að sonur hennar fannst látinn á heimili þeirra á Nýbýlavegi í lok janúar, sætir ákæru fyrir að bana drengnum með kodda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×