Innlent

Telur niður­stöðu dóms­mála­ráð­herra órökrétta

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir telur niðurstöðu dómsmálaráðherra órökrétta í ljósi þess að hann taki undir öll efnisatriði sem séu til grundvallar áminningunni.
Sigríður Friðjónsdóttir telur niðurstöðu dómsmálaráðherra órökrétta í ljósi þess að hann taki undir öll efnisatriði sem séu til grundvallar áminningunni. Vísir/Vilhelm

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur niðurstöðu dómsmálaráðherra um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki tímabundna lausn frá störfum órökrétta.

Þetta kemur fram í frétt Rúv um málið. 

Fréttastofa Ríkisútvarpsins sendi fyrirspurn á Sigríði þar sem hún var innt eftir viðbrögðum við skoðanagrein Róberts Spanó, fyrrverandi forseta mannréttindadómstóls, sem birtist á Vísi þar sem hann sagðist ekki skilja niðurstöðu dómsmálaráðherra.

Sigríður segir í svarinu til Rúv að hún geti tekið undir röksemdir og ályktanir Róberts um að niðurstaða dómsmálaráðherra sé órökrétt. Það sé vegna þess að ráðherra hafi tekið undir öll efnisatriði sem hafi verið til grundvallar báðum þeim áminningum sem honum voru veittar á síðustu tveimur árum.

Hún segir einnig að hefði dómsmálaráðherra veitt vararíkssaksóknara tímabundna lausn frá störfum hefði mál hans verið rannsakað af nefnd sérfræðinga. Sú nefnd hefði upplýst hvort rétt væri að veita vararíkissaksóknara lausn eða láta hann taka aftur við embættinu. Þar vísar Sigríður í lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Hún segir einnig við Rúv að í umfjöllun um mál Helga hafi lítið farið fyrir kjarna málsins: „að sökum stöðu vararíkissaksóknara sé tjáningarfrelsi hans settar verulegar skorður vegna kröfu um sjálfstæði og hlutleysi ákæruvaldsins.“


Tengdar fréttir

Segir á­kvörðun ráð­herrans ekki hafa á­hrif á stöðu sína

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari eiga eftir að ræða saman eftir að dómsmálaráðherra gerði kunnugt um að verða ekki við ósk Sigríðar um að víkja Helga Magnúsi frá störfum. Hún segir niðurstöðu ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ríkissaksóknari.

Um­mælin ó­við­eig­andi en Helgi Magnús sleppur

Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu.

Sigríður segir háttsemi Helga Magnúsar ekki sæmandi embætti ríkissaksóknara

Ríkissaksóknari ítrekar að henni hafi borið að áminna vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar hegðunar fyrir tveimur árum og senda mál hans til dómsmálaráðuneytisins á þessu ári þegar hann hélt uppteknum hætti. Háttsemi hans hafi verið ósæmileg og ósamræmanleg embætti Ríkissaksóknara og varpað rýrð á embættið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×