Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. september 2024 11:09 Össur þegar hann tók við verðlaununum í morgun. Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 og var valið kynnt við hátíðlega viðhöfn í Tónhæð, húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Þar segir að Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og formaður lista- og menningarráðs, hafi afhent Össuri viðurkenningarskjal og blóm í tilefni dagsins. Vinir, samstarfsfólk og fjölskylda Össurar voru viðstödd athöfnina auk Skólahljómsveitarinnar sem lék nokkur lög sem hafa verið útsett af Össuri. Össur hefur verið skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs frá árinu 1993 en hann hóf störf sem kennari við Skólahljómsveitina árið 1987. Þess má geta að tónlistarferill hans hófst í Skólahljómsveitinni, þegar hann var 11 ára gamall og nýfluttur í Kópavog. „Það er sannur heiður að fá að útnefna Össur Geirsson sem heiðurslistamann Kópavogs. Starf hans er magnað, í menningu, listum, uppeldi og aðhlynningu barna og ungmenna bæjarins um áratuga skeið. Við hjá Kópavogsbæ erum þakklát fyrir að hafa notið starfskrafta Össurar og við í Lista- og menningarráði erum stolt af valinu á heiðurslistamanni Kópavogs,“ sagði Elísabet Berglind Sveinsdóttir við tækifærið. Margrét Tryggvadóttir, Elva Helgadóttir, Soffía Karlsdóttir, Össur Geirsson, Elísabet Berglind Sveinsdóttir, Árni Pétur Árnason, Ísabella Leifsdóttir. Vanmetið að opna undraheima listarinnar fyrir börnum Stærstan hluta starfsævi sinnar hefur Össur helgað börnum, ungmennum og tónlistaruppeldi og hlaut hann viðurkenningu Barnaheilla fyrir óeigingjarnt starf með börnum og ungmennum fyrir tveimur árum síðar. „Að opna undraheima listarinnar fyrir börnum er mikilvægt starf og hugsanlega stundum svolítið vanmetið. Hvort sem um er að ræða tónlist, ritlist eða myndlist þá hef ég þá trú að listirnar gefi okkur góða og fallega sýn á lífið og allt það góða sem það hefur að bjóða,“ sagði Össur við tækifærið og bætti við að tónlistaruppeldi væri það sem stæði honum næst. „Mér finnst svo mikilvægt að kynna alls konar tónlist fyrir börnum, bæði nýja og gamla tónlist, gæðatónlist sama hvaða tónlistarstíl við erum að tala um. Það er gaman að koma saman í hljómsveit og búa til tónlist og bæði upplífgandi og gefandi að finna góðan samhljóm og vita að maður á sinn þátt í að framkalla þennan galdur. Þetta er eitthvað sem allir tónlistarnemendur taka með sér út í lífið, hvort sem þau le ggja tónlistina fyrir sig sem starf eða áhugamál.“ Lista- og menningarráð Kópavogs velur heiðurslistamann Kópavogs. Meðal þeirra sem hafa hlotið viðurkenninguna eru Björn Guðjónsson stofnandi Skólahljómsveitarinnar og fyrsti stjórnandi, Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld, Baltasar Samper myndlistarmaður, Þórunn Björnsdóttir stjórnandi kórs Kársnesskóla og Kristín Þorkelsdóttir hönnuður. Náms- og starfsferill Össurar Össur hóf nám í tónlistarskóla FÍH þegar hann var stofnaður og lauk þaðan prófi á básúnu árið 1987. Hann var samhliða því námi í Tónlistarskólanum í Reykjavík og útskrifaðist þaðan með blásarakennarapróf árið 1988. Hann lagði stund á framhaldsnám í útsetningum og tónsmíðum í Berklee College of Music í Boston. Árið 1987 hóf Össur störf sem kennari við Skólahljómsveit Kópavogs og tók síðan við starfi skólastjóra árið 1993. Samhliða því hefur hann kennt við Tónlistarskóla FÍH, Tónskóla Sigursveins, Skólahljómsveit Austurbæjar og Listaháskóla Íslands. Megnið af listsköpun Össurar hefur snúist í kring um börn, ungmenni og tónlistaruppeldi. Össur hefur samið og útsett fjölda laga fyrir lúðrasveitir, bæði barnasveitir og sveitir fullorðinna eða alls um 500 tónverk. Hann hefur komið fram með ýmsum tónlistarhópum sem stjórnandi, útsetjari eða hljóðfæraleikari, til dæmis Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar. Hann hefur einnig leikið með með fjölda listamanna í dægurlaga- og jassheiminum, til dæmis Stuðmönnum, SigurRós og Bubba Morthens. Menning Kópavogur Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Fleiri fréttir Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira
Náms- og starfsferill Össurar Össur hóf nám í tónlistarskóla FÍH þegar hann var stofnaður og lauk þaðan prófi á básúnu árið 1987. Hann var samhliða því námi í Tónlistarskólanum í Reykjavík og útskrifaðist þaðan með blásarakennarapróf árið 1988. Hann lagði stund á framhaldsnám í útsetningum og tónsmíðum í Berklee College of Music í Boston. Árið 1987 hóf Össur störf sem kennari við Skólahljómsveit Kópavogs og tók síðan við starfi skólastjóra árið 1993. Samhliða því hefur hann kennt við Tónlistarskóla FÍH, Tónskóla Sigursveins, Skólahljómsveit Austurbæjar og Listaháskóla Íslands. Megnið af listsköpun Össurar hefur snúist í kring um börn, ungmenni og tónlistaruppeldi. Össur hefur samið og útsett fjölda laga fyrir lúðrasveitir, bæði barnasveitir og sveitir fullorðinna eða alls um 500 tónverk. Hann hefur komið fram með ýmsum tónlistarhópum sem stjórnandi, útsetjari eða hljóðfæraleikari, til dæmis Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar. Hann hefur einnig leikið með með fjölda listamanna í dægurlaga- og jassheiminum, til dæmis Stuðmönnum, SigurRós og Bubba Morthens.
Menning Kópavogur Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Fleiri fréttir Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira