Menning

Allt í banönum á Brút

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Veitingastaðurinn Brút opnaði listasýningu með ellefu olíumálverkum af banönum eftir David Molesky.
Veitingastaðurinn Brút opnaði listasýningu með ellefu olíumálverkum af banönum eftir David Molesky. SAMSETT

Bananar og hetjur hafa tekið yfir veggi vinsæla veitingastaðarins Brút en þar opnaði einstök listasýning um síðustu helgi í samstarfi við Gallery Port og David Molesky. Margt var um manninn og fólk gæddi sér meðal annars á banönum meðan það skoðaði bananalistina gaumgæfilega.

Sýningin ber heitið „Prone to Bruise“ og samanstendur af verkum listamannsins David Molesky. Sýningin verður uppi á veggjum Brút til 12. janúar næstkomandi og er opin samhliða opnunartíma veitingastaðarins.

Bananarnir taka sig vel út á Brút.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept

Í fréttatilkynningu segir:

„Á veggjum Brút má nú sjá ellefu ný olíumálverk sem David hefur unnið sérstaklega fyrir sýninguna. 

Í verkunum blandar hann saman tveimur þekktum myndefnum úr listasögunni, hetjunni og banananum. Þannig birtist í þeim nokkuð brothætt karlmennska, karlmennska sem er með frekar þunnan skráp og meiðist og merst auðveldlega. 

Prone to Bruise, eins og David kallar það.

David Molesky hefur unnið mikið hér á Íslandi síðan hann kom hingað fyrst og starfaði þá með Odd Nerdrum veturinn 2006–2007 í gamla Borgarbókasafninu.

Hugmyndin að þessum nýju verkum kviknaði hjá honum þegar hann var gestalistamaður á Listasafni Akureyrar á fyrstu mánuðum COVID-faraldursins. Þá málaði hann mynd af fólki í sóttvarnarbúningum hlynna að banana í mannsstærð.

Fólk í sóttvarnarbúning hlúir að veikum banana.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept

Sú mynd var ein þeirra sem Brút hafði á veggjum sínum í samstarfi við Gallery Port og vakti athygli bæði gesta og starfsfólks sem ræddu hana sín á milli.

Undanfarið hefur David útfært þessa myndlíkingu enn frekar og nýtt sér efnistök endurreisnartímabilsins í málverkum af dýrlingum og píslarvottum. Niðurstaðan er einstök sýning sem býður upp á nýja sýn á karlmennsku og viðkvæmni.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:

Ungir sem aldnir gæddu sér auðvitað á banana.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
David Molesky ásamt unnustu sinni Vivian Howard.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
David Molesky mætti að sjálfsögðu í réttu litapallettunni!Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson eigandi Brút.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Mikið líf og fjör!Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Feðgarnir Ólafur Örn og Steinarr.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Gestir virtu fyrir sér fjölbreyttar útgáfur af banönum.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Emil Ásgrímsson hönnuður mætti á svæðið.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Heiða Björg Hilmisdóttir Formaður Sambands íslenskra sveitafélagaSteinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Risa banani.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
María Birgisdótir og Ásmundur GíslasonSteinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Vivien og David. Sýningin stendur til 12. janúar.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Gestir fengu rými til að túlka verkin á eigin forsendum og ræða við listamanninn.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Gestir spjalla við Óla.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Ragga Gísla og Birkir Kristinsson létu sig ekki vanta.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Fjöldi fólks mætti á sýningaropnunina og átti lífleg samtöl.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Glæsilegir gestir.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Gulir veggirnir tónuðu vel við verkin og vínið.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Sandra Ocares.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Vín og myndlist er vinsæl blanda.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Skvísur á spjalli.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Andri Gunnarsson.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Bjór borinn fram.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Líf Magneudóttir var í góðum gír.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Vivian Howard sjónvarpskokkur og Óli ræða saman.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Skarphéðinn Bergþóruson frá Gallery Port afgreiðir málverk.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept
Bananarnir slóu í gegn.Steinþór Rafn Matthíasson / Konsept





Fleiri fréttir

Sjá meira


×