Innlent

„Þing­flokkur Pírata braut á mér“

Árni Sæberg skrifar
Atli Þór Fanndal var ráðinn samskiptastjóri Pírata í byrjun maí. Hann er þegar hættur.
Atli Þór Fanndal var ráðinn samskiptastjóri Pírata í byrjun maí. Hann er þegar hættur. Aðsend

Fyrrverandi starfsmaður Pírata segir þingflokkinn hafa brotið á honum og átta öðrum Pírötum, með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata. Hann var látinn taka pokann sinn eftir umdeildan aðalfund flokksins.

Mikill styr hefur staðið um starfsemi Pírata eftir aðalfund flokksins, þar sem mikil nýliðun varð í framkvæmdastjórn hans og tveir stjórnarmenn voru felldir í atkvæðagreiðslu. 

Formaður í þrjár vikur

Meðal þess sem breyttist eftir aðalfundinn var að Atli Stefán Yngvason, formaður framkvæmdastjórnar, féll úr stjórninni og varð varamaður. Þá kom Halldór Auðar Svansson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, varaþingmaður og forritari, nýr inn í stjórnina og varð formaður. 

Halldór Auðar entist ekki lengi í formannsstólnum en hann steig til hliðar sem formaður aðeins þremur vikum eftir fundinn. Samhliða því var varamönnum í stjórn veittur fullur atkvæðisréttur í stjórninni.

Ástæðan fyrir þessum breytingum á stjórninni og atkvæðisrétti hefur verið sögð megn óánægja áhrifafólks innan Pírata með framkvæmd stjórnarkjörsins og meintri atkvæðasmölun á fundinum.

Samskiptastjórinn látinn fjúka

Skömmu eftir fundinn var Atli Þór Fanndal, sem þá hafði verið samskiptastjóri Pírata í nokkra mánuði, látinn taka pokann sinn. 

Ástæðan hefur ekki verið kunngjörð opinberlega en hann er sagður hafa staðið að áðurnefndri atkvæðasmölun, þvert á vilja þeirra sem fara með mannaforráð í flokknum.

Þá hefur komið á daginn að þingflokkur Pírata skoðaði skjáskot úr hópspjalli fólks sem skipulagði hallarbyltinguna á aðalfundinum skömmu eftir fundinn. Atli Þór var þátttakandi í hópspjallinu. Í frétt mbl.is um málið er haft eftir Birni Leví Gunnarssyni, þingmanni Pírata, að honum þætti ekkert tiltökumál að skoða hópspjallið. Þingflokkurinn fengi reglulega slík trúnaðargögn til yfirlestrar.

Þingflokkurinn ekki rannsóknarréttur

Atli Þór hefur nú birt yfirlýsingu á Facebook þar sem hann bregst við ummælum Björns Levís og þingflokkssystur hans Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur um málið.

Hann segir að fólk sem tekur þátt í flokkspólitík eigi ekki að þurfa að búa við að þingflokkur stjórnmálahreyfingar hnýsist í einkasamtöl flokksfélaga. Þingflokkur sé ekki rannsóknarréttur yfir flokksfélögum sínum. Þingmenn eigi ekki að sjá sig sem trúarlögreglu flokka.

„Þingflokkur Pírata braut á mér og átta öðrum Pírötum með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata. Fundur um þetta fór fram að morgni 9. september, tveimur dögum eftir aðalfund flokksins. Í kjölfarið var gögnunum dreift meðal ‘flokkseigenda’ svo að halda mætti áfram að grafa undan réttkjörinni stjórn.“

Krefst afsökunarbeiðni

Þá segir Atli Þór að þurfa að standa í því að útskýra það sérstaklega fyrir Pírötum að friðhelgi einkalífs og persónuvernd séu eitthvað sem sé  ekki hægt að svipta fólk út frá geðþótta sé það „hlægilegasta í þessum farsa öllum, þó þar sé af nógu að taka.“

„Rétt væri að þingflokkurinn bæði okkur afsökunar og reyndi að bæta fyrir brotin. Því miður hefur þó ekkert komið úr þeim ranni annað en afneitanir og réttlætingar á framkomu sem ég myndi ekki óska neinum.“


Tengdar fréttir

Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata

Kosið var til framkvæmdastjórnar Pírata á aðalfundi flokksins í Hörpu í dag. Umtalsverð nýliðun varð í framkvæmdastjórn flokksins sem og stefnu- og málefnanefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×