Lífið

Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kanye og Bianca hafa vakið athygli fyrir óvenjulegan og býsna ólíkan klæðaburð. Á meðan hann er gjarnan vel klæddur í pokaleg föt og með grímu fyrir andlitinu er hún yfirleitt klædd í sem fæst föt.
Kanye og Bianca hafa vakið athygli fyrir óvenjulegan og býsna ólíkan klæðaburð. Á meðan hann er gjarnan vel klæddur í pokaleg föt og með grímu fyrir andlitinu er hún yfirleitt klædd í sem fæst föt. Getty

Rapparinn Kanye West og arkitektinn Bianca Censori eru sögð vera á barmi skilnaðar eftir tveggja ára hjónaband. Ekki hefur sést til hjónanna saman meðal almennings í tvær vikur.

TMZ hafa hjónabandsörðugleikana eftir þó nokkrum heimildamönnum. 

Hjónin séu bæði tvö búin að segja sínum nánustu að sambandinu sé lokið. Ekki er vitað hvað var valdur að sambandsslitunum né hvenær þau áttu sé nákvæmlega stað. 

Sést hefur nokkrum sinnum til hins 47 ára gamla West þar sem hann hefur verið einn á ferð í Tókýó í Japan. Þá ku hin 29 ára Bianca hafa flogið til Ástralíu til að vera með fjölskyldu sinni. Slíkt telst óvenjulegt þar sem parið hefur verið nær óaðskiljanlegt frá því þau byrjuðu saman.

Síðast sást til hjónanna saman meðal almennings þann 20. september, eða fyrir sautján dögum síðan, þegar þau fóru saman í verslunarleiðangur í Tókýó.

Hafa vakið athygli fyrir klæðaburðinn

Kanye og Bianca giftu sig 20. desember 2022 í Palo Alto í Kaliforníu áður en þau voru einu sinni búin að tilkynna umheiminum samband sitt. 

Síðan þá hafa hjónin verið eins og óaðskiljanleg eining og vakið töluverða athygli. Það hefur ekki síst verið vegna djarfs klæðaburðar Biöncu.

Því stefnir allt í annan skilnað Kanye en hann var áður giftur athafnakonunni Kim Kardashian og á með henni North, Saint, Chicago og Psalm West.


Tengdar fréttir

Kanye West sagður vera kominn með nýja „eigin­­konu“

Slúðurmiðlar vestanhafs greina frá því að tónlistarmaðurinn umdeildi Kanye West sé kominn með nýja konu upp á arminn. Ekki nóg með það, heldur hafi þau haldi leynilega brúðkaupsathöfn nú á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×