Innlent

Þriggja bíla á­rekstur á Miklu­braut

Samúel Karl Ólason skrifar
462690524_10161754742119035_6824929440034922421_n
Vísir/Vilhelm

Þrír bílar skullu saman á Miklubraut í kvöld, við Grensásveg. Að minnsta kosti tveir voru fluttir á slysadeild.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru tveir sjúkrabílar sendir á vettvang, auk dælubíls.

Að minnsta kosti tveir voru fluttir á slysadeild en upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir. Þá tók áhöfn dælubílsins þátt í hreinsun á vettvangi slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×