Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss en aftur­kölluð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan gefur út tilkynningu um málið á eftir.
Lögreglan gefur út tilkynningu um málið á eftir. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun en svo afturkölluð vegna slyss á Snæfellsnesi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að verið sé að vinna í málinu.

Hann staðfestir að slys hafi orðið en vildi ekki segja hvers konar slys er um að ræða.

„Við erum að skoða þetta. Það er verið að vinna í þessu,“ segir Ásmundur Kristinn. Það verði send tilkynning um málið síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×