Menning

Sjóð­heitt menningarrými á Baldurs­götu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Helena Reynis og Hulda Katarína á opnun Klei.
Helena Reynis og Hulda Katarína á opnun Klei. Elísabet Blöndal

Menningarlífið iðar á Baldursgötu 36 þar sem nýtt listrænt rými var að opna. Þar má finna ýmis konar handverk, bókabúð með sérvöldum bókum hvaðan af úr heiminum og myndlistar-og hönnunarstofu. Opnuninni var fagnað með stæl síðastliðinn fimmtudag.

Í fréttatilkynningu segir:

„Klei atelier er rými þar sem þú getur skoðað kjarna handverks. Í atelier-inu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur á Baldursgötu 36 er þemað hin óbætanlega handverkslist þar sem hinu tímalausa er fagnað. Óður til þeirra sem móta efni með höndum sínum og lífga upp á hluti af djúpri fegurð og notagildi.

Vinnustofan er rými þar sem allir eru velkomnir. Öll námskeið eru kennd bæði á íslensku og ensku þar sem markmiðið er alltaf það sama, að deila þekkingu á leirlist og láta sköpunargáfuna skína.

Öll námskeiðin eru í höndum Huldu, stofnanda Klei atelier Hulda er með grad diplómu sem keramiker frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Á daginn er Klei opin verslun þar sem þú getur keypt handverk eftir Huldu ásamt fleiri vörum og á kvöldin eru leirnámskeið.

Garg bookstore opnaði í sama rými þar sem Helga Dögg hönnuður sérvelur inn bækur út um allan heim. Studio Altént opnaði í sameiginlegu rými vinnustofu þar sem listakonurnar sinna myndlist og vöruhönnun.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: 

Gestir á öllum aldri.Elísabet Blöndal
Garg er með glæsilegt útval sérvaldra bóka.Elísabet Blöndal
Faðmlög og fjör!Elísabet Blöndal
Klei er staðsett á Baldursgötu 36.Elísabet Blöndal
Helga Dögg til hægri rekur rýmið með Huldu.Elísabet Blöndal
Verið að gera og græja.Elísabet Blöndal
List og gleði.Elísabet Blöndal
Hulda og Helena Reynis.Elísabet Blöndal
Altént studio er meðal annars með glæsilega spegla eftir hönnuðinn Salóme Holanders.Elísabet Blöndal
Hulda Katarína glæsileg.Elísabet Blöndal
Knús í hús!Elísabet Blöndal
Opin vinnustofa.Elísabet Blöndal
Hulda og Helga Dögg.Elísabet Blöndal
Glæsileg íslensk hönnun.Elísabet Blöndal
Helena Reynis og Hulda Katarína.Elísabet Blöndal





Fleiri fréttir

Sjá meira


×