Innlent

Sjálf­stæðis­menn kjósa um efstu sæti á lista á lands­byggðinni

Kjartan Kjartansson skrifar
Fulltrúar í kjördæmaráði Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og tveimur öðrum kjósa efstu menn á framboðslista fyrir þingkosningarnar á sunnudag.
Fulltrúar í kjördæmaráði Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og tveimur öðrum kjósa efstu menn á framboðslista fyrir þingkosningarnar á sunnudag. Vísir/Arnar

Kosið verður um efstu sætin á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum á fundum kjördæmaráða sem fara fram á sunnudag. Raðað verður í neðri sætin.

Aðal- og varamenn í kjördæmaráðum Sjálfstæðisflokksins í Suður-, Norðvestur- og Norðausturkjördæmum hafa verið boðaðir á fundi á sunnudag. Þar stendur til að að þeir greiði atkvæði um efstu sætin á listunum, að sögn Ingvars P. Guðbjörnssonar, upplýsingafulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Kosið verður um sex efstu sætin í Suðurkjördæmi, fimm efstu í Norðausturkjördæmi og fjögur efstu í Norðvesturkjördæmi. Tillaga stjórna kjördæmaráðanna er að raðað verði í önnur sæti á listana þar.

„Svo munu þessi þrjú kjördæmi öll væntanlega afgreiða fullskipaða lista á sunnudag,“ segir Ingvar.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fundar í kvöld til þess að ræða aðferð við val á framboðslistum í kjördæmunum tveimur þar.

Alþingiskosningar fara fram 30. nóvember eftir að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk leyfi forseta fyrir því að rjúfa þing í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×