Innlent

Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér

Jakob Bjarnar skrifar
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að segja gott komið með þingmennsku.
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að segja gott komið með þingmennsku. vísir/vilhelm

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið það út að hún sækist ekki eftir því að taka sæti á lista hreyfingarinnar yfir komandi Alþingiskosningar.

Það gerir hún með stuttum pistli á Facebook. Þar segir hún að talsverðar breytingar hafi orðið á sínu lífi fyrir tíu árum þegar hún varð þingmaður fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð.

„Ég hafði á umliðnum misserum og árum öðru hverju tekið sæti sem varamaður, en var nú komin í þá stöðu að helga mig landsmálunum. Við tóku skemmtilegir og gefandi tímar, fyrst í stjórnarandstöðu og svo stjórn. Stjórnmálastarf er að mínu mati mikilvægt og er almennt skemmtilegt og andlega auðgandi en auðvitað líka krefjandi.“

Steinunn segir starfið hafa gefið sér færi á að kynnast flestum öngum samfélagsins en fyrst og fremst þó alls konar fólki. Fyrir þessa reynslu verði hún að eilífu þakklát.

„Ég lít líka stolt um öxl þegar kemur að öllum þeim málum sem mér hefur tekist að þoka áfram, bæta og í félagi við aðra fá samþykkt - en í öðrum tilvikum stöðva eða í það minnsta sníða verstu gallana af.“

Þá víkur Steinunn að því að eftir talsverða umhugsun hafi hún komist að þeirri niðurstöðu að nú sé komið gott, hún ætlar ekki að bjóða sig fram til forystu í komandi kosningum.

„Innan hreyfingar er nóg af góðu fólki sem mun taka við keflinu - sem er mikilvægt, því erindi Vinstri grænna er brýnt nú sem endranær. Það þarf áfram skýra rödd kvenfrelsis, jöfnuðar, náttúruverndar og friðar.“

Steinunn Þóra segir að endingu að hún hlakki til að taka þátt í komandi kosningabaráttu sem almennur félagi og segist sannfærð um að Vinstri hreyfingin grænt framboð muni ná góðum árangri í kosningunum. Félögum sínum í þingflokki þakkar hún frábært samstarf í gegnum tíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×