Skoðun

Jens Garðar í 1. sæti

Elliði Vignisson skrifar

Næstu helgi er ögurstund hjá Sjálfstæðisflokknum. Í öllum kjördæmum göngum við Sjálfstæðismenn til þeirra verka að velja okkur merkisbera í komandi kosningum. Þar ber okkur skylda til að hugsa um það fyrst og fremst hvaða fólki við treystum til að fylgja stefnu okkar og boða hana á þann hátt að kjósendur geti sameinast um hana. Einn maður stendur upp úr sem augljós leiðtogi í Norðausturkjördæmi. Þar fer maður sem getur sameinað kjördæmið með sterkri sýn fyrir framtíðina – Jens Garðar Helgason.

Sterkir leiðtogahæfileikar og reynsla

Jens Garðar hefur um árabil sýnt að hann er leiðtogi sem nær árangri. Hann hefur stýrt fjölbreyttum verkefnum og fyrirtækjum, þar á meðal í sjávarútvegi og sveitarstjórn, sem hafa styrkt bæði atvinnulíf og samfélög. Með reynslu sinni úr Samtökum atvinnulífsins og sem formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð hefur Jens sannað að hann getur leitt fólk saman, tekið erfiðar ákvarðanir og skapað raunverulegar breytingar. Spor Jenna má sjá víða. Hér í okkar góða samfélagi í Ölfusi höfum við sannarlega notið góðs af krafti hans og framtíðarsýn. Störf hans og aðkoma að stórum fjárfestingarverkefnum í gegnum stjórn Ölfus Cluster þar sem hann sat sem stjórnarmaður voru aðdáunarverð. Þar sýndi Jenni enn og aftur mikla færni í því að sameina mismunandi hagsmunaaðila og stuðla að uppbyggingu sem gagnast hefur samfélaginu í heild. Þetta er hæfileiki sem er ómetanlegur í fjölbreyttu kjördæmi eins og Norðausturkjördæmi.

Fínn peyi og drengur góður

Til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins er nauðsynlegt að vera sterkur leiðtogi. Það er hins vegar ekki nóg. Oddviti Sjálfstæðismanna þarf einnig að vera góður og traustur einstaklingur, og það er einmitt það sem Jenni er. Meðal föðurfólks míns undir Eyjafjöllum hefði Jenni fengið þann dóm að vera talin drengur góður, betri dóm fékk fólk ekki. Meðal móðurfólks míns í Eyjum hefði hann verið sagður fínn peyi. Betri orð eigum við Eyjamenn ekki yfir fólk eins og Jenna.

Því lofa ég

Á rúmlega tveggja áratuga þátttöku í stjórnmálum hef ég reynt að fara sparlega með loforð. Hér og nú ætla ég hins vegar að lofa því að með Jenna sem oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður hægt að horfa fram á veginn með vissu um að sameiginlegur ávinningur, uppbygging og velferð íbúa verði höfð að leiðarljósi. Þetta er maðurinn sem getur leitt kjördæmið inn í bjarta framtíð, þar sem allir vegir verða færir. Þetta er maðurinn ykkar. Þetta er í senn drengur góður og fínn peyi. Ég skora á Sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi að tryggja Jens Garði fyrsta sæti á framboðslista flokksins.

Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi.




Skoðun

Sjá meira


×