Innlent

Stillt upp á alla lista Við­reisnar

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þær Hann Katrín og Þorbjörg Sigríður hafa vermt efstu sæti lista Viðreisnar í Reykjavík síðustu ár. Jón Gnarr ætlaði sér að hrista upp í hlutunum í prófkjöri. 
Þær Hann Katrín og Þorbjörg Sigríður hafa vermt efstu sæti lista Viðreisnar í Reykjavík síðustu ár. Jón Gnarr ætlaði sér að hrista upp í hlutunum í prófkjöri.  vísir

Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins. 

Í tilkynningu segir að mikil umræða hafi verið um hvort fara ætti í uppstillingu eða prófkjör og „mikill hugur í ráðunum að stefna næst að prófkjöri, þegar rýmri tími gefst til að raða á lista“.

Niðurstaða fundarins veikir óneitanlega stöðu Jóns Gnarr sem hafði gert sér vonir um að skáka Hönnu Katrínu Friðriksson eða Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem vermt hafa efstu sæti Reykjavíkurlista Viðreisnar. 

Áður hafði Jón Gnarr sagt fjölmiðla oftúlka orð hans um að hann vonaðist til að sigra þær „nokkuð auðveldlega“. 

Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, hefur einnig sóst eftir öðru sætinu á lista Viðreisnar í öðru Reykjavíkurkjördæmanna í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember næstkomandi.

Þá hefur Sigurður Orri Kristjánsson, sem lét nýverið af störfum hjá Viðreisn, sóst eftir sæti ofarlega á lista. Hann var á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í síðustu kosningum. 

„Landshlutaráðin fimm hafa jafnframt kosið sér uppstillinganefndir, sem hefja strax störf. Þau sem áhugasöm eru um að vera á lista Viðreisnar í þessum kjördæmum geta skráð sig hér,“ segir í tilkynningu flokksins. 

Fjallað var um nýjustu vendingar í kosningabaráttunni í kvöldfréttum Stöðvar 2: 

Fylgst er með öllum vendingum í kosningavaktinni: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×