Innlent

Vill leiða Við­reisn í Suðurkjördæmi

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Jasmina Vajzovic Crnac vill leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Jasmina Vajzovic Crnac vill leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Aðsend

Jasmina Vajzovic Crnac hefur gefið kost á sér í efsta sæti Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Jasmina er stjórnmálafræðingur að mennt, og er eigandi IZO ráðgjafar sem veitir ráðgjöf og fræðslu þegar kemur að innflytjendum og flóttafólki.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Jasminar.

Hún býður sig fram gegn sitjandi oddvita, Guðbrandi Einarssyni. Uppstillinganefndir munu stilla upp á alla lista Viðreisnar og verða listar kynntir eftir helgi.

„Ég er reiðubúin að leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi og vinna með fólki að málefnum sem ég brenn fyrir á sviði mannréttinda, efnahags, atvinnulífs, jafnréttis, velferðar og menntunar,“ segir í tilkynningu.

Jasmina kemur upphaflega frá Bosníu og Hesegóvinu og varð flóttamaður á meðan stríðið í Bosníu stóð yfir. Hún flutti til Íslands árið 1996 sem innflytjandi.

Framhald tilkynningarinnar hljóðar svo:

„Ég veit að mín rödd og mín persónulega reynsla sem barn á flótta og innflytjandi frá landi með marga ólíka þjóðfélagshópa muni vera dýrmæt á Alþingi Íslendinga.

Ég er stjórnmálafræðingur að mennt með diplómu í opinberri stjórnsýslu ... Ég starfa við að upplýsa, fræða og veita ráðgjöf bæði fyritækjum í atvinnulífinu, stofnunum ríkis og sveitarfélaga, félagssamtökum ofl.

Ég er mikill leiðtogi í mér og ég er óhrædd að takast á við erfið mál. Síðast starfaði ég sem leiðtogi Alþjóðateymis Reykjavíkurborgar þar sem ég var með yfir 60 starfsmenn í vinnu og veitti og þróaði þjónustu við flóttafólk. Ég hef tekið þátt í stjórnmálum og hef setið sem varabæjarfulltrúi í sveitarstjórn Reykjanesbæjar.“

Jasmina kveðst trúa staðfastlega á hlutverk og gildi Viðreisnar, sem sé evrópusinnaður, frjálslyndur og hlynntur einkaframtaki. Hún sé staðráðin og metnaðarfull til að starfa af heilindum með „inngildandi og stefnumótandi sýn til að styðja við árangur flokksins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×