Fótbolti

Birkir kom inn á og skoraði sára­bótar­mark

Siggeir Ævarsson skrifar
Birkar Bjarnason var á skotskónum í dag
Birkar Bjarnason var á skotskónum í dag Vísir/Getty

Birkir Bjarnason og félagar í Bresica steinlágu á heimavelli í dag, 2-5, þegar liðið tók á móti Sassuolo í toppslag í ítölsku Seríu B.

Bæði liðin eru í harði baráttu í efri helmingi deildarinnar en með sigrinum náði Sassuolu að slíta sig aðeins frá liðunum fyrir neðan með 18 stig í 3. sæti, en Brescia er í 5. sæti með 13. Því skal þó haldið til haga að aðeins eru níu umferðir að baki í deildinni.

Birkir byrjaði leikinn í dag á bekknum en kom inn á á 79. mínútu í stöðunni 1-3. Strax í kjölfarið kom fjórða mark Sassoulu sem gerði í raun út um leikinn en Birkir skoraði sitt fyrsta mark í vetur skömmu síðar.

Lokatölur 2-5 í Brescia í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×