Innlent

Sau­tján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Eldur kom upp á Stuðlum snemma í morgun.
Eldur kom upp á Stuðlum snemma í morgun. Vísir/Vilhelm

Barn lést í bruna sem upp kom á Stuðlum í morgun og starfsmaður slasaðist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barna- og fjölskyldustofu sem rekur Stuðla. Lögreglan greindi frá því að hinn látni hefði verið 17 ára piltur.

Í tilkynningu frá Barna- og fjölskyldustofu segir að öll vinna á heimilum og stofnunum Barna- og fjölskyldustofu miði að því að tryggja öryggi barna og starfsfólks. Stofnunin harmi að það hafi ekki tekist í dag.

„Aðgerðir stofnunarinnar frá í morgun hafa miðað að því að tryggja áfram öryggi og velferð allra sem málið snertir. Gerðar hafa verið ráðstafanir fyrir börnin sem voru vistuð á Stuðlum og áfallateymi Rauða krossins kallað til. Lögreglan fer með rannsókn málsins,“ segir í tilkynningunni, sem Ólöf Ásta Farestveit forstjóri stofnunarinnar undirritar. 

Þá sé ljóst að húsnæði Stuðla sé skemmt og ekki unnt að halda þar úti hefðbundinni þjónustu. Búið sé að gera samkomulag við SÁÁ um tímabundin afnot af húsnæði á Vogi, þar sem búið er að hliðra til svo hægt sé að bregðast við stöðunni á meðan unnið er að viðgerðum á Stuðlum. 

„Um er að ræða húsnæði sem er unnt að aðskilja frá almennri starfsemi þar sem sérfræðingar Stuðla og Barna- og fjölskyldustofu munu hlúa áfram að börnunum. Viðgerðum á Stuðlum verður flýtt eins og unnt er og áhersla lögð á að ljúka uppbyggingu annarra meðferðarúrræða sem unnið hefur verið að,“ segir í tilkynningunni. 

„Fyrir hönd Barna- og fjölskyldustofu þakka ég viðbragðsaðilum og barnaverndarþjónustum sveitarfélaga fyrir viðbrögð þeirra í morgun. Ég þakka um leið SÁÁ fyrir skjót viðbrögð og stuðning. Ég votta aðstandendum barnsins mína dýpstu samúð.“

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×