Fótbolti

Messi kom inn á í hálf­leik og skoraði þrennu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi fagnar einu marka sinna ásamt Jordi Alba. Messi skoraði þrennu á aðeins ellefu mínútum.
Lionel Messi fagnar einu marka sinna ásamt Jordi Alba. Messi skoraði þrennu á aðeins ellefu mínútum. Getty/Carmen Mandato

Lionel Messi er nýkominn heim úr landsliðsverkefni þar sem hann skoraði þrennu og byrjaði því á bekknum í bandaríska fótboltanum í nótt. Hann kom hins vegar inn á í hálfleik og skoraði í þrennu í 6-2 sigri Inter Miami á New England Revolution.

Með þessum sigri þá sló Inter Miami stigametið í bandarísku deildinni en þetta var lokaleikur deildarkeppninnar.

Miami menn enduðu með 74 stig í 34 leikjum en New England Revolution átti einmitt stigametið áður sem voru 73 stig frá árinu 2021.

Messi og félagar unnu 22 af 34 leikjum sínum og töpuðu aðeins fjórum leikjum en átta af leikjunum enduðu með jafntefli.

Án Messi þá lenti Inter Miami tveimur mörkum undir á móti New England Revolution í leiknum í nótt. Mörkin komu á 2. og 34. mínútu.

Luis Suárez var hins vegar búinn að jafna metin fyrir hálfleik.

Messi kom síðan inn í hálfleik og eftir aðeins eina mínútu var hann búinn að leggja upp mark ásamt Jordi Alba en Benjamin Cremaschi skoraði það mark.

Messi skoraði síðan þrennu á aðeins ellefu mínútum frá 78. mínútu til 89. mínútu. Suárez átti stoðsendinguna í tveimur markanna og Alba í einu.

Messi endaði deildarkeppnina með tuttugu mörk og sautján stoðsendingar í aðeins nítján leikjum. Hann missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Messi varð engu að síður næstmarkahæstur í deildarkeppninni ásamt þeim Suárez og Denis Bouanga hjá Los Angeles en allir skoruðu þeir tuttugu mörk. Markahæstur var Christian Benteke hjá DC United með 23 mörk. Messi varð einnig þriðji í stoðsendingum.

Dagur Dan Þórhallsson spilaði fyrstu áttatíu mínúturnar þegar Orlando City tapaði 2-1 á heimavelli á móti Atlanta United. Orlando City endaði í fjórða sæti Austurdeildarinnar, 22 stigum á eftir toppliði Inter Miami.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×