Íslenski boltinn

Saltkóngur nýr for­maður innan Vals

Sindri Sverrisson skrifar
Björn Steinar Jónsson tekur við formannsembættinu af Berki Edvardssyni.
Björn Steinar Jónsson tekur við formannsembættinu af Berki Edvardssyni. Facebook og Vísir/Vilhelm

Valsmenn kusu sér nýjan formann knattspyrnudeildar og nýja stjórn á haustfundi sínum í fyrrakvöld.

Börkur Edvardsson hafði verið formaður knattspyrnudeildar um langt árabil eftir að hafa fyrst tekið sæti í stjórn deildarinnar fyrir 21 ári. Hann er nú hættur.

Í stað Barkar var Björn Steinar Jónsson kjörinn nýr formaður. Björn Steinar, sem er 39 ára gamall, kom nýr inn í stjórnina á haustfundi fyrir ári síðan og hefur gegnt stöðu varaformanns.

Björn Steinar hefur látið að sér kveða í atvinnulífinu og stofnaði ásamt fleirum saltframleiðslufyrirtækið Saltverk sem starfrækt hefur verið í meira en áratug. Þá er hann einnig meðeigandi veitingastaðarins Skál! á Njálsgötu.

Björn Steinar var á sínum tíma markvörður og lék fótbolta með Val upp alla yngri flokka.

  • Ný stjórn knattspyrnudeildar Vals:
  • Björn Steinar Jónsson, formaður
  • Breki Logason
  • Styrmir Þór Bragason
  • Kristinn Ingi Lárusson
  • Málfríður Erna Sigurðardóttir
  • Ólafur Thors
  • Erna Erlendsdóttir
  • Varafólk:
  • Hilmar Hilmarsson
  • Baldur Bragason
  • Baldur Þórólfsson
  • Hugrún Sigurðardóttir
  • Ingólfur Sigurðsson
Börkur Edvardsson og Björn Steinar Jónsson hafa starfað saman í stjórn Vals síðasta árið. Þeir voru glaðbeittir við tímamótin á haustfundi Vals á mánudagskvöld.

Það skýrist á laugardaginn hvort að ný stjórn mun hafa úr einhverjum Evrópupeningum að moða en Valur þarf á stigi að halda gegn ÍA til að eiga ekki á hættu að missa Stjörnuna upp fyrir sig, í 3. sæti Bestu deildar karla.

Valur hafnaði í 2. sæti Bestu deildar kvenna nú í haust, eftir úrslitaleik við Breiðablik, en varð bikarmeistari. Valskonur spila því í undankeppni Evrópukeppni á næstu leiktíð og það gæti skilað verðlaunafé sem þó er mun lægra en í karlaboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×