Sport

Dag­skráin í dag: Fyrsti heima­leikur Víkings í Sam­bands­deildinni og spenna í körfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar eru á heimavelli í dag en spila engu að síður á Kópavogsvellinum.
Víkingar eru á heimavelli í dag en spila engu að síður á Kópavogsvellinum. vísir/Diego

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Evrópudeildin og Sambandsdeildin eru í fullum gangi þar sem við Íslendingar eigum einn fulltrúa og þá byrjar fjórða umferðin í Bónus deild karla í körfubolta með fjórum leikjum.

Víkingar spilar fyrsta heimaleik sinn í Sambandsdeildinni og sá leikur fer fram mjög snemma um daginn vegna birtuskilyrða.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 er Gazið á dagskrá en það er upphitun Pavels Ermolinskij fyrir fjórðu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta.

Klukkan 19.10 er Skiptiborðið á dagskrá en þar er fylgst samtímis með öllum leikjum kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.10 eru Tilþrifin á dagskrá en þar er farið yfir leiki kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 16.35 er leikur Qarabag og Ajax í Evrópudeildinni á dagskrá.

Klukkan 18.50 er leikur Fenerbahce og Man. Utd. í Evrópudeildinni á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 16.35 er leikur Midtjylland og Union SG í Evrópudeildinni á dagskrá.

Klukkan 18.50 er leikur Rangers og FCSB í Evrópudeildinni á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 16.35 er leikur Panathinaikos og Chelsea í Sambandsdeildinni á dagskrá.

Klukkan 16.35 er leikur Real Betis og FC Kaupmannahafnar í Sambandsdeildinni á dagskrá.

Klukkan 1.30 eftir miðnætti hefst útsending frá Maybank Championship golfmótinu á LPGA mótaröðinni. Mótið er haldið í Kuala Lumpur í Malasíu.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.05 er leikur Vals og Keflavíkur í Bónus deildar karla í körfubolta.

Vodafone Sport

Klukkan 14.15 hefst útsending frá leik Víkings og Cercle Brugge í Sambandsadeildinni á dagskrá. Leikurinn verður gerður upp strax á eftir á sömu rás.

Klukkan 16.45 er leikur St. Gallen og Fiorentina í Sambandsdeildinni á dagskrá.

Klukkan 18.50 er leikur Tottenham og AZ Alkmaar á dagskrá.

Klukkan 23.05 er leikur Boston Bruins og Dallas Stars í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.

Bónus deildin

Klukkan 19.10 er leikur KR og Álftaness í Bónus deildar karla í körfubolta.

Bónus deildin 2

Klukkan 19.10 er leikur ÍR og Þórs Þ. í Bónus deildar karla í körfubolta.

Bónus deildin 3

Klukkan 19.10 er leikur Hattar og Njarðvíkur í Bónus deildar karla í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×