Atvinnulíf

Kosningaspenna á vinnu­stöðum og rifrildi um pólitík

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er eðlilegt að kosningaspenna myndist á vinnustöðum í aðdraganda kosninga. Þó þannig að fólk hefur mismikinn áhuga á að vera innan um umræðu um pólitík, finnst það ekki geta tjáð sig eða fer að líða illa. Jafnvel líka verr við sumt fólk. 
Það er eðlilegt að kosningaspenna myndist á vinnustöðum í aðdraganda kosninga. Þó þannig að fólk hefur mismikinn áhuga á að vera innan um umræðu um pólitík, finnst það ekki geta tjáð sig eða fer að líða illa. Jafnvel líka verr við sumt fólk.  Vísir/Getty

Nú þegar líður að kosningum má gera ráð fyrir að hitna muni verulega í umræðunum víða. Ekki síst á vinnustöðum.

Þar sem andrúmsloftið getur breyst þegar einhverjir sem brenna fyrir pólitíkinni eru ekki sammála. Og fara jafnvel að rífast.

Eða fólkið sem er ekki sammála samstarfsfélögunum, en kýs að halda sér til hlés. En líður ekki vel innan um allt þetta tal.

Sumir upplifa jafnvel breytt viðhorf hjá sér gagnvart yfirmanni eða samstarfsfélögum, þegar pólitískar skoðanir viðkomandi koma í ljós.

Þannig að já: Í aðdraganda kosninga má gera ráð fyrir að kosningaspenna myndist á mörgum vinnustöðum.

Sem má svo sem alveg teljast eðlilegt. Ekki síst nú, þegar aðdragandi kosninga var skammur og hiti nokkuð mikill.

Spurningin er: 

Hvernig förum við sem vinnustaðir í gegnum þennan tíma, án þess að leiðindi komi upp eða einhverjum í hópnum líði illa?

Í Harvard Business Review hefur verið fjallað um það, hvernig stjórnendur geta reynt að takast á við þessi tímabil. Sem í okkar tilfelli má gera ráð fyrir að vari næstu vikurnar.

Í stuttu máli eru góðu ráðin þessi:

Gott að gera:

Fyrir starfsfólk getur skipt miklu máli að yfirmaðurinn sýni gott fordæmi. Það gerir hann á þessum tímum best með því að sýna í verki að hann/hún ber virðingu fyrir ólíkum skoðunum og er fús til að hlusta á skoðanir fólks, sem eru andstætt hans/hennar eigin.

Hvettu starfsmenn til að sýna ólíkum skoðunum fólks í pólitík skilning og bentu á að forsendur fólks fyrir því hvað þau telja samfélaginu fyrir bestu, eru oft ólík viðmið eða bakgrunnur.

Farðu varlega í að segjast vera á öndverðu meiði eða sammála einhverju sem sagt er. Því þegar yfirmaður er mjög skýr í afstöðu sinni í stjórnmálum, líður sumu starfsfólki oft eins og það verði jafnvel síður metið að verðleikum sínum í starfi, vegna þess að það er ekki sammála þér.

Ekki…

Ekki banna starfsfólki að tala um pólitík. Yfirmaður hefur ekki leyfi til að stjórna því um hvað fólk ræðir, en getur alltaf hvatt til málefnalegra og hófstilltrar umræðu.

Ekki hika þó við að stöðva eða gera athugasemdir við rætnar, ómálefnalegar athugasemdir eða fullyrðingar sem gætu talist særandi, dónalegar, dólgslegar eða persónulegar. Það er af hinu góða að stjórnandi sjái til þess að fólk sé kurteist við hvort annað á vinnustaðnum.

Ekki hunsa þá staðreynd að þegar kosninga-spenna er í loftinu, hefur hún áhrif á starfsfólk og vinnustaði. Hvettu frekar til þess að samtöl séu hreinskiptin, opinská og málefnaleg þar sem rödd allra skiptir máli.


Tengdar fréttir

Tilfinningin „að langa ekki til að fara í vinnuna“

Það er erfitt að líða þannig að langa ekki til að mæta til vinnu. Að fá hnút í magann á sunnudagskvöldum því að það er vinna daginn eftir. Að vera aldrei í tilhlökkun fyrir næsta dag, vegna þess að það er vinna daginn eftir.

Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti

Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×