Innlent

Nú 27 börn veik vegna e.coli sýkingarinnar

Lovísa Arnardóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Af sjö deildum leikskólans hafa veikindi barna komið upp á fimm þeirra.
Af sjö deildum leikskólans hafa veikindi barna komið upp á fimm þeirra. Vísir/Einar

Alls eru nú 27 börn á leikskólanum Mánagarði veik vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum. Af þeim eru fjögur inniliggjandi. Tvö þeirra sem eru inniliggjandi eru á gjörgæslu og þurfa bæði að öllum líkindum að fara í nýrnaskilun. Þetta staðfestir Andri Ólafsson samskiptastjóri Landspítalans.

Greint var frá því fyrr í dag að rannsókn á uppruna smitanna væri fullum gangi. Sóttvarnalæknir sagði þar séu matvæli helst til skoðunar. Tvö börn liggja á gjörgæslu vegna veikindanna og fara að líkindum í nýrnaskilun.

Þá kom einnig fram í dag að samkvæmt heimildum fréttastofu eigi einhverjir leikskólakennarar börn á Sólgarði sem er systurskóli Mánagarðs og heyrir undir Félagsstofnun stúdenta. Veikindin á Mánagarði hafa meðal annars haft þau áhrif að foreldra barna á Sólgarði hafa verið hvattir til að vera heima með börn sín vegna undirmönnunar.

Að neðan má sjá upplýsingar frá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu varðandi E.coli sýkingu.

Einkenni E.coli sýkingar

Niðurgangur

Kviðverkur

Ógleði og/eða uppköst

Þessi fyrstu einkenni ganga venjulega yfir á 5–7 dögum. Hluti þeirra sem smitast fá blóðugan niðurgang.

Smitleiðir

Ein helsta smitleiðin er með menguðum matvælum og vatni.

Smit getur einnig verið á milli einstaklinga, helst hjá litlum börnum t.d. með leikföngum eða mataráhöldum.

Beint smit frá dýrum í menn er einnig þekkt.

Meðgöngutími

Meðgöngutími sýkingarinnar, það er tími frá smiti til einkenna frá meltingarvegi, er yfirleitt 2–4 sólarhringar.

Greining

Saursýni er sent í ræktun til að staðfesta sýkingu.

Meðferð

Drekka vel af vökva

Hvíld

Almennt er ekki mælt með sýklalyfjum vegna þess að þau geta aukið hættuna á alvarlegum fylgikvillum og þau virðast ekki hjálpa til við að meðhöndla sýkinguna.

Oftast fer meðferð fram heima með því að drekka vel og hvíla sig, í slæmum tilfellum þarf innlögn á sjúkrahús.

Hvað get ég gert?

Drekka vel af vökva sem inniheldur sölt, til dæmis vatnsblandaða íþróttadrykki (t.d. Gatorade, Powerade, Aquarius), tærar bollasúpur eða léttsykrað te. Einnig er hægt að kaupa sykursaltvatnsblöndur í apóteki. Best er að drekka oft og lítið í einu.

Forðast skal sterkan, fituríkan og brasaðan mat. Einnig sykraðar vörur eins og gosdrykki, ávaxtasafa og sæta safa. Kaffi og orkudrykki ætti einnig að forðast.

Ekki skal taka inn lyf til að stöðva niðurgang - það hægir á meltingarkerfinu og kemur í veg fyrir að líkaminn losi sig við eiturefnin.

Ekki skal mæta til vinnu, skóla eða í dagvistun fyrr en 48 tímum frá því að einkenni eru farin.

Frekari upplýsingar um niðurgang hjá börnum og niðurgang hjá fullorðnum.

Forvarnir

Passa upp á geymslu og eldun matvæla

Hreinlæti í eldhúsi og passa upp á handþvott, sérstaklega fyrir meðferð matvæla, eftir salernisferðir og eftir snertingu við dýr

Drekka hreint vatn á ferðalögum

Æskilegt er að þvo og/eða afhýða hrátt grænmeti og ávexti fyrir neyslu

Forðast að gleypa ómeðhöndlað yfirborðsvatn í sundlaugum, heitum pottum, gosbrunnum, ám, lækjum og tjörnum.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Ef grunur eru um E. coli smit skal hafa samband við heilsugæsluna, símaráðgjöf í síma 1700

Leita til bráðamóttökunnar ef:

Er einkenni eru svæsin

Mikill niðurgangur og/eða blóðugur niðurgangur

Mikill slappleiki og þróttleysi

Kviðverkur


Tengdar fréttir

Veikindi á fimm af sjö deildum leikskólans

Sóttvarnalæknir segir rannsókn á uppruna E.coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði í fullum gangi og þar séu matvæli helst til skoðunar. Tvö börn liggja á gjörgæslu vegna veikindanna og fara að líkindum í nýrnaskilun.

Fjölgar í hópi al­var­lega veikra barna

Af sjö börnum úr leikskólanum Mánagarði sem liggja inni á Barnaspítala Hringsins með staðfesta E.coli-sýkingu eru tvö alvarlega veik. Tíu eru með staðfesta sýkingu.

Eitt barnanna al­var­lega veikt og ó­vissa fram yfir helgi

Eitt barn er alvarlega veikt eftir að E.coli sýking kom upp á leikskólanum Mánagarði, en tólf hafa leitað á spítala vegna hennar. Læknir á Barnaspítala Hringsins segir óvissuástand uppi um umfang smitsins, sem muni líklega vara fram yfir helgi. Óráðlegt sé að gefa börnum sýklalyf við þessar aðstæður, og mikilvægast að tryggja að þau fái nægan vökva. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×